Í nýjustu Hagtíðindum Hagstofunnar er samantekt á niðurstöðum kosninga til sveitarstjórna sem fram fóru 31. maí 2014. Kosningaþátttaka í þeim kosningum var sú dræmasta í sveitarstjórnarkosningum til þessa eða 66,5%
Teknar eru saman upplýsingar um fjölda kjósenda á kjörskrá og kosningaþátttöku miðað við 2010. Einnig kemur fram hver kosningaþátttaka í sveitarstjórnarkosningum hefur verið frá 1950 – 2014. Kosningaþátttaka eftir kyni og aldri 2014 og kjörna sveitarstjórnarmenn eftir kyni frá 1974 – 2014.