Í apríl síðast liðnum auglýstu Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) eftir umsóknum um styrki til eflingar atvinnulífs og nýsköpunar á Suðurlandi. Um var að ræða fjármuni til styrkveitinga úr Vaxtarsamningi Suðurlands, Sóknaráætlun Suðurlands og fjármagn sameiginlegum sjóðum sveitarfélaganna sem áður var úthlutað af Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands. Þessar styrkveitingar hafa nú verið sameinaðar hjá SASS með sameiginlegum úthlutunum tvisvar á ári. Á stjórnarfundum SASS og Vaxtarsamnings Suðurlands, sem haldnir voru á dögunum, var ákvarðað um styrkveitingar fyrri hluta þessa árs.
SASS bárust alls 89 umsóknir að þessu sinni og hafa þær aldrei verið fleiri á þessu sviði. Samþykkt var að veita 28 verkefnum styrk að upphæð samtals 31.450.000, kr.
Verkefni: | Styrkþegi: | Upphæð: |
Uppbygging innviða og markaðssókn perlumölsverksmiðjunnar á Stokksnesi | Litlahorn ehf. | 3.500 |
Uppbygging fuglatengdrar ferðamennsku á Suðurlandi | Óstofnaður klasi – Guðríður Ester Geirsdóttir | 2.500 |
Ferðamálaklasi í Flóahreppi | Óstofnaður klasi – Iðunn Ír Ásgeirsdóttir | 2.500 |
Uppbygging alþjóðlegs rannsóknartengds framhaldsnáms á Selfossi í jarðsjálftavísindum | Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði | 2.500 |
Markaðssókn á humarsoði til Danmerkur | Mathúsið ehf. | 2.000 |
Markaðssókn Aqua Icelander, þjálfunarbúnaðs fyrir hesta, á markaði erlendis | Formax Paralamp ehf. | 2.000 |
Markaðssókn sjávar- og grænmetisrétta á erlenda markaði | Grímur Kokkur ehf. | 2.000 |
Klasasamstarf ferðamála í Hveragerði | Ferðamálasamtök Hveragerðis | 1.500 |
Samstarf um moltugerð fyrir lífræna bændur á suðurlandi | Sólheimar ses | 1.500 |
Uppbygging, merkingar og markaðssókn – Gamla laugin og Hverahólminn á Flúðum | Björn Kjartansson | 1.000 |
Þróun og markaðssókn alþjóðlegs sumarnáms | Íslenski bærinn | 1.000 |
Markaðssókn inn á nýja markaði | Millibör ehf. | 1.000 |
Uppbygging sjálfbærrar rekstrareiningar Kötlu Jarðvangs | Katla jarðvangur ses | 1.000 |
Icelandic Horse Expo – kau | Háskólafélag Suðurlands | 1.000 |
Útgáfa á korti með sölustöðum staðbundinna matvæla í héraði | Ríki Vatnajökuls | 600 |
Icelandic HorseWorld – visitor center | Ice events ehf. | 500 |
Markaðssetning afþreyingar allt árið um kring – hestasýningar o.fl. | Kálfholt hestaferðir ehf. | 500 |
Markaðssetning hestasýninga | Hestval ehf. | 500 |
Markaðssetning afurða frá Efstadal | Efstidalur | 500 |
Markaðssókn leiðsagnar um nýjar gönguleiðir | Iceguide ehf. | 500 |
Markaðssetning heilsutengdrar ferðaþjónustu | Lára Marteinsdóttir | 500 |
Markaðssetning matarminjagripa | Friðheimar ehf. | 500 |
Framleiðsla á repjuolíu til manneldis – vöruþróun og markaðsmál | Hjalti Egilsson | 500 |
Markaðsgreining sjávarafurða | Hafnarnes VER hf. | 500 |
Jöklaís – sælgæti úr sveitinni – vöruhönnun og markaðsmál | Jón Kristinn Jónsson og Sigurlaug Gissurardóttir | 450 |
Hámörkun aflaverðmæta smábáta | Sólsker ehf. | 300 |
Vöruþróun á geitaafurðum frá Lækjarhúsum í suðursveit | Laufey Guðmundsdóttir | 300 |
Getur kortlagning auðlinda/segla í Kötlu Jarðvangi eflt ferðaþjónustu, nýsköpun og vöruþróun á jarðvangssvæðinu? | Guðlaug Ósk Svansdóttir | 300 |
Góð kynning var á styrkveitingunum að þessu sinni og voru meðal annars haldnir 9 kynningarfundir víðsvegar um landshlutann. Greinilegt er að mikil eftirspurn er eftir fé til ýmissa þarfa verkefna til uppbyggingar í atvinnulífi á Suðurlandi. Það er von samtakanna að úthlutanir þessar beri tilætlaðan árangur, um eflingu atvinnulífs, nýsköpunar og fjölgun starfa á Suðurlandi – með tíð og tíma. Stuðningur SASS er þó ekki einvörðungu bundinn við styrkveitingar, því ráðgjöf á vegum SASS stendur öllum til boða. Í sumum tilvikum ráðgjöf sá stuðningur sem skilar mestum árangri. Öllum umsækjendum verður boðið viðtal hjá ráðgjöfum SASS í framhaldi, um stöðu og framtíð þeirra verkefna og um mögulega aðkomu SASS að þeim framfara verkefnum