4. fundur verkefnastjórnar Sóknaráætlunar – 2019
Fjölheimum Selfossi, 25. nóvember, kl. 13:00
Boðuð á fund: Arna Ír Gunnarsdóttir formaður verkefnisstjórnar, Runólfur Sigursveinsson, Elís Jónsson, Arna Ósk Harðardóttir og Sveinn Sæland.
Mætt á fund: Arna Ír Gunnarsdóttir formaður verkefnisstjórnar, Runólfur Sigursveinsson, Elís Jónsson, Arna Ósk Harðardóttir og Sveinn Sæland. Einnig sátu fundinn Bjarni Guðmundsson framkvæmdarstjóri SASS og Þórður Freyr Sigurðsson sviðsstjóri Þróunarsviðs sem jafnframt ritaði fundargerð.
Arna Ír Gunnarsdóttir setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.
1. Kynning á nýsamþykktri Sóknaráætlun Suðurlands 2020 til 2024
Stefnan lögð fram til kynningar. Þórður Freyr Sigurðsson fór yfir ferlið við mótun nýrrar sóknaráætlunar. Unnið var að stefnumótuninni með aðstoð ráðgjafa frá Capacent. Á bilinu 4-500 manns tóku þátt í vinnunni, á íbúafundum, á fundi samráðsvettvangs, á vegum ráðgjafa, stjórnar SASS, starfsmanna og á ársþingi SASS. Sóknaráætlun Suðurlands 2020 til 2024 var birt í samráðsgátt stjórnvalda og bárust tvær athugasemdir. Áætlunin var í framhaldi lögð fyrir ársþing SASS 25. – 26 okt. sl. og þar samþykkt. Skrifað var undir nýja samninga um sóknaráætlanir landshluta 12. nóvember s.l. Liggur nú fyrir samþykkt Sóknaráætlun Suðurlands 2020 til 2024.
2. Síðari úthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands á árinu 2019
Verkefnastjórn fjallaði um tillögur fagráða vegna síðari úthlutunar Uppbyggingarsjóðs Suðurlands á árinu 2019. Heildarfjöldi umsókna var 156. Umsóknir um menningarstyrki voru 89 og 66 á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar. Aldrei hafa jafn margar umsóknir borist að hausti. Telur heildarfjöldi umsókna á árinu 2019, samtals úr þessu tveimur umsóknarferlum, 263 umsóknir. Er það næst mesti fjöldi umsókna Uppbyggingarsjóðs Suðurlands frá upphafi.
Verkefnastjórn samþykkir að veita samtals um 37 mkr. til styrkveitinga úr síðari úthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands á árinu 2019. Samþykkt að veita 20.696.000, kr. til 56 menningarverkefna og 15.900.000, kr. til 23 nýsköpunarverkefna, samtals að upphæð 36.696.000, kr. Nánar er gerð grein fyrir styrktum verkefnum í viðauka.
3. Áhersluverkefni í tengslum við nýja sóknaráætlun
Þórður Freyr Sigurðsson upplýsti að vinna er hafin á meðal ráðgjafa um mótun áhersluverkefna nýrrar sóknaráætlunar. Til umræðu fyrirkomulag við val á áhersluverkefnum nýrrar sóknaráætlunar. Ákveðið að fresta frekari umræðum til næsta fundar sem haldinn verður í desember..
Fundi slitið kl. 16:45.
Samþykktar styrkveitingar:
Styrkir til Atvinnuþróunar og nýsköpunar : |
||
Afurðir úr héraði á borð ferðamanna |
Sláturfélagið Búi svf. |
2.500.000 |
Baðhús Eyrarbakka |
1765 ehf. |
2.000.000 |
Athugun á möguleikum til fiskeldis á lan |
Hallgrímur Steinsson |
1.000.000 |
Endurvinnsla með vermicompost aðferð 2 |
Sigurjón Vídalín Guðmundsson |
1.000.000 |
Markaðssókn Midbiks |
Midbik ehf. |
900.000 |
Vatnajökull svifferja |
Vala ferðaþjónusta ehf. |
900.000 |
Matvinnsla |
Á Ártanga ehf. |
750.000 |
verðmætaaukning í íslensku grænmeti |
Erna Hödd Pálmadóttir |
750.000 |
Bergið Klifið. |
Seabirds and Cliff Adventures Tours ehf. |
500.000 |
Hjólaslóðagerð hjá Iceland Bike Farm |
Guðmundur Fannar Markússon |
500.000 |
Markaðssókn True Adventure ehf. 2020 |
True Adventure ehf. |
500.000 |
Markaðssókn Zipline Iceland 2020 |
Giljagleði ehf. |
500.000 |
Mosey – hreinsivörur II |
MOSEY ehf. |
500.000 |
Pysjur í ferðaþjónustu |
Þekkingarsetur Vestmannaeyja ses |
500.000 |
Sjálfsafgreiðsla netinu – Do it yourself |
Vilhelmína Sigríður Smáradóttir |
500.000 |
Álfar, tröll, huldufólk og þjóðtrú |
Guðrún Bjarnadóttir |
400.000 |
Íslenski bærinn; sóknarfæri |
Hannes Rúnar O Lárusson |
400.000 |
Ylfaría lífrænar húðvörur |
Guðbjörg Eva Guðbjartsdóttir |
400.000 |
aukning fyrirframbókaðra ferða |
Smári Stefánsson |
300.000 |
Gallerí á hjólum |
Ágústa Ragnarsdóttir |
300.000 |
Skool Beans |
Holly Louise Keyser |
300.000 |
Ullarhringurinn (ens. The Woollencircle) |
Ullarhringurinn (ens. The Woollencircle) |
300.000 |
Heima Gerður Markaðssók |
Gerður Dýrfjörð |
200.000 |
Styrkir til Menningar: |
||
Skipsstrandasafnið Hafnleysa |
Vala Hauksdóttir |
700.000 |
Þjóðsagnavefur – Suðurland |
Kirkjubæjarstofa |
700.000 |
Þorpið í bakgarðinum |
Hin íslenska frásagnarakademía ehf. |
700.000 |
Lífið í skóginum (vinnuheiti) |
Listasafn Árnesinga |
600.000 |
Barnabækur og bakkabíó |
Drífa Pálín Geirsdóttir |
500.000 |
BRIM kvikmyndahátíð |
Guðmundur Ármann Pétursson |
500.000 |
Hver vill hugga krílið? |
Guðmundur Óli Gunnarsson |
500.000 |
Skaftfellskar konur, ævi og störf |
Kirkjubæjarstofa |
500.000 |
Sögur og samfélags tengsl |
Teresa Maria Rivarola |
500.000 |
Tónlist í kirkjum |
Rut Ingólfsdóttir |
500.000 |
Viðburðaröð í Hellunum við Hellu |
Hellarnir við Hellu ehf. |
500.000 |
Í andartakinu (vinnutitill) |
Menningarmiðstöð Hornafjarðar |
450.000 |
Norðurljósablús 2020 tónlistarhátíð |
Blús- og rokkklúbbur Hornafjarðar |
450.000 |
Saga ullarframleiðslu í Vík í Mýrdal |
Beata Monika Rutkowska |
450.000 |
Tónleikaraðir á Hendur í höfn |
Ása Berglind Hjálmarsdóttir |
450.000 |
Tilfinningar í litum |
Sjöfn Þórarinsdóttir |
420.000 |
Brennslugjörningar og flökkusýning |
Steinunn Aldís Helgadóttir |
400.000 |
Höskuldur Björnsson |
Menningarmiðstöð Hornafjarðar |
400.000 |
Konur og klukkustrengir |
Kvenfélagið Eining |
400.000 |
Kylja menningarhús og vinnustofa |
Alda Rose Cartwright |
400.000 |
Leikrit byggt á þjóðsögum Jóns Árnasonar |
Leikfélag Hveragerðis |
400.000 |
Lína Langsokkur |
Leikfélag Vestmannaeyja |
400.000 |
Stórkostleikar Grimmsbræðra |
Guðný Lára Gunnarsdóttir |
400.000 |
Um ástina / Sungið fyrir börnin / Jól |
Karlakór Hreppamanna |
400.000 |
Uppsetning á leikriti í febrúar 2020 |
Ungmennafélag Biskupstungna |
400.000 |
70 ára afmæli – Tónahátíð í Félagslundi |
Flóahreppur |
350.000 |
Að vefa erfðaefni-fiskroð (fyrsti hluti) |
Hanna Dís Whitehead |
350.000 |
Archives – efniskennd jökla |
Erna Elínbjörg Skúladóttir |
350.000 |
Iðunn og Gulleplin – íslenska konan |
Rakel Ýr Stefánsdóttir |
350.000 |
Jól á Flúðum |
Guðmundur Karl Eiríksson |
350.000 |
Jól við hafið |
Lúðrasveit Þorlákshafnar |
350.000 |
Kötlumót 2020 – karlakóramót Suðurlands |
Karlakórinn Jökull |
350.000 |
Listhönnun- sýningaröð |
Lista og menningarfélag Vestmannaeyja |
350.000 |
Oddgeir og Fúsi |
Stórsveit Íslands |
350.000 |
Söngstarf Tvennra tíma 2019-2010 |
Söngsveitin Tvennir tímar, félagasamtök |
350.000 |
Gola/ Breeze |
Lind Völundardóttir |
300.000 |
Hver er Rangæingurinn |
Héraðsskjalasafn Árnesinga |
300.000 |
Jólatónar Triolas Vocal Group |
Stefán Örn Viðarsson |
300.000 |
Salsa veisla í Eldheimum |
Kristín Jóhannsdóttir |
300.000 |
Samhljómur við sjónarrönd |
Lúðrasveit Vestmannaeyja |
300.000 |
Stelpur í skapandi tónlist |
Sigurður Páll Árnason |
276.000 |
100 ára afmælishátíð Kvenfélagsins í Vík |
Kvenfélag Hvammshrepps |
250.000 |
Fimm kóra mót á Selfossi |
Félag eldri borgara Selfossi |
250.000 |
Jólin koma.. Jóladagskrá Byggðasafns Árn |
Byggðasafn Árnesinga |
250.000 |
Langspilsvaka 2019 |
Eyjólfur Eyjólfsson |
250.000 |
mmm-kvöld á aðventu |
Hveragerðisbær |
250.000 |
Stórsveit Suðurlands |
Jóhann Ingvi Stefánsson |
250.000 |
Vetrargleði Midgard Base Camp |
Midgard Base Camp ehf. |
250.000 |
Þollóween 2019 |
Ása Berglind Hjálmarsdóttir |
250.000 |
100 ára saga varðskipsins Þór |
Kári Bjarnason |
200.000 |
Eflandi leiklist á ströndinni |
Magnús Jóhannes Magnússon |
200.000 |
Eyjamenn á Ólympíuleikum 1936 |
Hörður Baldvinsson |
200.000 |
Hagyrðingakvöld |
Harmonikufélag Hornafjarðar |
200.000 |
Lífsverk Ámunda Jónssonar |
Guðrún Arndís Tryggvadóttir |
200.000 |
Rithöfundakvöld MMH |
Menningarmiðstöð Hornafjarðar |
200.000 |
Saga og súpa |
Hörður Baldvinsson |
200.000 |