símafundur haldinn fimmtudaginn 17. október 2013 kl. 12.00
Mætt: : Gunnar Þorgeirsson, Haukur Guðni Kristjánsson, Unnur Þormóðsdóttir, Sandra Hafþórsdóttir, Helgi Haraldsson, Gunnlaugur Grettisson, Reynir Arnarson og Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.
Jóhannes Gissurarson boðaði forföll.
Gestur fundarins: Einar Kristjánsson sviðsstjóri hjá Strætó bs.
Dagskrá
1. Fundargerð um strætóakstur á landsbyggðinn frá 2. október sl.
Til kynningar.
2. Tillaga að nýrri gjaldskrá
Tillagan gerir ráð fyrir óbreyttu grunngjaldi en afsláttargjöld verði samræmd við 50% afslátt af grunngjaldi og gildi fyrir börn og unglinga 6 -18 ára og aldraða og öryrkja. Tillagan nær til allra landsvæða þar sem almenningssamgöngur eru reknar af landshlutasamtökunum.
Einar Kristjánsson gerði grein fyrir tillögunni.
Tillagan samþykkt en gjaldskráin mun þó ekki koma að fullu til framkvæmdar gagnvart börnum og unglingum fyrr en haustið 2014. Lögð verður fram tillaga um útfærslu áfangahækkana ásamt greinargerð á næsta stjórnarfundi sem m.a. felur í sér greiningu á fjölda og hlutfalli barna, unglinga og aldraðra og öryrkja af heildarfjölda farþega.
Gunnlaugur Grettisson sat hjá við afgreiðslu tillögunnar.
Fram koma að Jóhannes Gissurarson hefur lýst sig samþykkan tillögunni og mun staðfesta það með tölvupósti..
Fundi slitið kl. 13:00