563. fundur stjórnar SASS
Haldinn í fjarfundi
28. október 2020, kl. 16:30 – 18:30
Þátttakendur: Eva Björk Harðardóttir formaður, Helgi Kjartansson, Arna Ír Gunnarsdóttir, Björk Grétarsdóttir, Friðrik Sigurbjörnsson, Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, Ari Björn Thorarensen, Grétar Ingi Erlendsson og Ásgerður Kristín Gylfadóttir. Fundarmenn tegjast fundinum í gegnum fjarfundarhugbúnað. Einnig taka þátt í gegnum fjarfundarhugbúnað Þórður Freyr Sigurðsson sviðsstjóri Þróunarsviðs og Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri SASS, sem jafnframt ritar fundargerð.
Formaður setur fundinn og býður fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
Fundargerð 562. fundar staðfest en hún verður undirrituð síðar.
2. Ársþing SASS 2020
a. Dagskrá ársþings og aðalfundar
Formaður og framkvæmdastjóri kynntu lokadrög að dagskrá komandi árþings og aðalfundar SASS sem fram fer á morgun. Stjórn staðfesti dagskrárnar.
b. Skipan þingfulltúa í starfshópa ársþingsins
Farið yfir verklag starfshópanna og hvaða spurningar yrðu lagðar fyrir þá en alls verða hóparnir níu og um 10 þingfulltrúar í hverjum hóp. Stjórnarmenn verða formenn í hópunum og þeir munu leiða vinnu starfshópanna um nýsköpun og ritarar hópanna verða ráðgjafar á vegum SASS. Stjórn skipaði þingfulltrúa í starfshópa ársþingsins en gert er ráð fyrir að þeir muni starfa áfram eða fram að næsta ársþingi 2021.
Aldís Hafsteinsdóttir er formaður kjörbréfa- og kjörnefndar en hún var kosin á síðasta aðalfundi.
3. Sóknaráætlun Suðurlands – seinni úthlutun úr Uppbyggingarsjóð Suðurlands
Grétar Ingi og Friðrik véku af fundi þegar þessi liður er á dagskrá þar sem fyrirtæki sem þeir tengjast eiga umsóknir í sjóðnum. Þetta er gert til að tryggja málsmeðferð við úthlutunina og er til samræmis við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011.
a. Formaður kynnir að alls bárust 165 umsóknir í seinni úthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands 2020. Umsóknir í flokki atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna eru 72 og í flokki menningarverkefna eru 93.
Fagráð atvinnu- og nýsköpunar leggur til að veita 31 af 72 verkefnum styrk eða 43% umsókna. Samtals leggur ráðið til að úthluta 20 m.kr.
Fagráð menningar leggur til að veita 54 af 93 verkefnum styrk eða ríflega 58% umsókna. Samtals leggur ráðið til að úthluta 20 m.kr.
Stjórn samþykkir framangreindar tillögur fagráðanna og eftirtalin verkefni hljóta því styrk:
Atvinnuþróunar og nýsköpunarverkefni
Heiti verkefnis |
Styrkþegi |
Upphæð |
Loftþurrkað rauðvínslambalæri á suður-evrópska vísu |
Roberto Tariello |
1500000 |
Viðskiptaáætlun fyrir fjármögnun 5300 tonna fiskeldisstöðvar |
Sjálfbært fiskeldi í Eyjum ehf. |
1250000 |
Reynsluverkefni – Lífræn Hvítlauksrækt á Efri-Úlfsstöðum í A |
Hörður Bender |
1200000 |
Fullvinnsla á eldislaxi |
Grétar Ingi Erlendsson |
1000000 |
Salt Súrsað Grænmeti |
Hallur Hróarsson |
1000000 |
Endurvinnsla með vermicompost aðferð 3 |
Sigurjón Vídalín Guðmundsson |
1000000 |
HorseDay |
MOM ehf. |
1000000 |
ÍSHAMPUR |
Eldfell Innovation IVS |
900000 |
Fjölvirkar gæðasápur |
Guðrún Helgadóttir |
800000 |
Vatnsrofin fiskiprótín úr hliðarafurðum fiskvinnslu |
Langa ehf. |
800000 |
Hrafntinnugerð með bræðslu á súru hrauni úr Kötlu |
Icelandic Lava Show ehf. |
750000 |
Vöruþróun og markaðssetning |
Sólsker ehf |
700000 |
Fullvinnsla á sæbjúgum Hafnarnes |
VER hf. |
600000 |
Heilsu- og sjúkraþjálfun hrossa |
Kalsi ehf. |
600000 |
Laxaafurð |
Fiskás ehf. |
550000 |
COD WINGS ÞORSK VÆNGIR |
Gísli Matthías Auðunsson |
500000 |
BestaGró: Lífrænn áburður unnin úr íslenskum sjávarafurðum |
Margrét Kara Sturludóttir 500000 |
|
Framleiðsla á tilbúnum matvælum úr villibráð |
Pálmi Geir Sigurgeirsson |
500000 |
Hágæða íslenskir grænkera ostar |
Livefood ehf. |
500000 |
Otoseeds |
Mörður Gunnarsson Ottesen |
500000 |
Undir sama þaki |
Burstasteinn ehf. |
500000 |
Þróun, uppbygging og markaðssetning á rafhjólaferðum |
Midgard Adventure ehf. |
450000 |
Via Ferrata í Mýrdal |
True Adventure ehf. |
400000 |
Ölverk – hot sauce framleiðsla |
Einfalt ehf. |
400000 |
Tindaborg |
Tindaborg ehf. |
400000 |
Softana Original Markaðsherferð |
Bjarni Einarsson |
300000 |
Markaðsefni fyrir sprettur |
Aldingróður ehf. |
300000 |
Skræður – Markaðsherferð |
Ársæll Markússon |
300000 |
Sjálfbært mál |
Brynja Davíðsdóttir |
300000 |
Íslenska flóruspilið |
Guðrún Bjarnadóttir |
250000 |
Fab Lab-langspil |
Eyjólfur Eyjólfsson |
250000 |
Menningarverkefni
Heiti verkefnis |
Styrkþegi |
Upphæð |
Skjálftinn |
Biðukolla ehf. |
1500000 |
Óperutónleikar Árnesi / Óperu-og skólatónleikar Höfn |
Góli ehf |
900000 |
Jólin koma – Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands |
Góli ehf |
850000 |
NEST (FYRSTI HLUTI) |
Home Soil ehf. |
700000 |
Þjóðsagnavefur – Suðurland |
Kirkjubæjarstofa |
700000 |
Uppsetning myndlistarsýningar Katrínar Sigurðardóttur 2021 |
Menningarmiðstöð Hornafjarðar |
650000 |
Baðstofan |
Gullkistan, miðstöð sköpunar ehf. |
600000 |
Sjósókn frá Landeyjasandi |
Kvenfélagið Freyja |
600000 |
Tími fyrir sjálfstætt fólk / Time for independent people |
Barbora Fialová |
500000 |
Félagslíf eldri borgara á Suðurlandi |
Anna Edit Dalmay |
500000 |
Allt í björtu báli – Eg var ung gefin Njáli |
Tjörvi Óskarsson |
500000 |
Norðurljósablús 2021 tónlistarhátíð |
Blús- og rokkklúbbur Hornafjarðar |
500000 |
Sálarsmurstöðin |
Kristín Björk Kristjánsdóttir |
450000 |
Fornar Ferðaleiðir – ENDURHEIMT – HANDBÓK |
Kirkjubæjarstofa |
400000 |
Paradís Amatörsins |
Tinna Ottesen |
400000 |
Lifandi tjáning í safni – með safneign |
Listasafns Árnesinga Listasafn Árnesinga |
400000 |
Þjóðleikur á Suðurlandi 2020 – 2021 |
Magnús Jóhannes Magnússon |
400000 |
Undirbúningur og uppsetning sýningar í Skálholti |
Prentsögusetur |
400000 |
Tónleikar með íslenskum þjóðlögum: „Ný upp ran þín sumarsól“ |
Edit Anna Molnár |
400000 |
Tónlist í kirkjum |
Rut Ingólfsdóttir |
400000 |
Bjartir sunnudagar á Eyrarbakka |
Bakkastofa ehf. |
300000 |
Fornbýli í landslagi – ljósmynda- og veggspjaldasýning |
Menningarmiðstöð Hornafjarðar |
300000 |
Fiðlufjör á Hvolsvelli 2021 |
Chrissie Telma Guðmundsdóttir |
300000 |
Litla jörðin, vinnusmiðja |
Agnes Hjaltalín Andradóttir |
300000 |
Gamanleikrit |
Leikfélag Hveragerðis |
300000 |
Örsögur – Kynning á verkum úr safneign |
Listasafn Árnesinga |
300000 |
Hundalíf, einkasýning Bjargeyjar Ólafsdóttur |
Listasafn Árnesinga |
300000 |
Yfirtaka í Listasafni Árnesinga |
Anna Kolfinna Kuran |
300000 |
„Ó flýt þér nær þegar vorharpan slær“ – Eyjalög að sumri |
Guðný Charlotta Harðardóttir |
300000 |
Gestagangur í Þorlákskirkju með jólaívafi |
Tómas Jónsson |
300000 |
Gímaldin í Fagurhólsmýri |
Gísli Magnússon |
300000 |
Grímsvatnagos í tónum og mynd |
Lilja Magnúsdóttir |
300000 |
Hamingjuaukandi vortónleikar Kyrjukórsins í Þorlákshöfn |
Biðukolla ehf. |
300000 |
Jól á Flúðum |
Guðmundur Karl Eiríksson |
300000 |
Sunnlenskir stórtónleikar á streymisveitum |
Heimir Eyvindsson |
300000 |
Byrjendanámskeið í raftónlist fyrir unglinga. |
Listasafn Árnesinga |
250000 |
Vetrarsmiðjur við ströndina |
Alda Rose Cartwright |
250000 |
Í það minnsta kerti og spil – jóladagskrá Byggðasafns Árn. |
Byggðasafn Árnesinga |
250000 |
Skapandi rými |
Midgard Base Camp ehf. |
250000 |
„Forrest Forrester’s audio-visual performances“ |
Aleksandra Krystyna Baldyga |
250000 |
Jónas Friðrik – tónleikar |
Vestmannaeyjabær |
250000 |
Sundlaugarpartí |
Menningarmiðstöð Hornafjarðar |
250000 |
Spunavélin |
Sigurður Ingi Einarsson |
200000 |
Steinaríkið |
Hanna Dís Whitehead |
200000 |
Tónlistarbekkir |
Inga Margrét Jónsdóttir |
200000 |
Víkingar – card game |
Mateusz Bartosz Borkowski |
200000 |
Mósaík Vinnustofur |
Helga Jónsdóttir |
200000 |
Barnabókahöfundar heimsækja bókasafn og grunnskóla á Höfn |
Menningarmiðstöð Hornafjarðar |
150000 |
Rithöfundakvöld MMH |
Menningarmiðstöð Hornafjarðar |
150000 |
Upplestrakvöld með fjölmenningarlegu ívafi |
Menningarmiðstöð Hornafjarðar |
150000 |
1000 Andlit heimaeyjar |
Bjarni Sigurðsson |
150000 |
Íbúar Bláskógarbyggðar |
Ívar Sæland |
150000 |
MUUR |
Lind Völundardóttir |
150000 |
Mannlíf og byggð í glerplötusafni Kjartans Guðmundssonar. |
Vestmannaeyjabær |
100000 |
Grétar Ingi og Friðrik komu á fundinn að lokinni umfjöllun.
4. Önnur mál til kynningar og umræðu
a. Fundargerðir m.a. stjórna annarra landshlutasamtaka.
Lögð fram til kynningar, fundargerð 508. fundar stjórnar SSH, fundargerð 156. fundar stjórnar SSV, fundargerð 761. fundar stjórnar SSS, fundargerð 59. fundar stjórnar SSNV, fundargerð 15. fundar stjórnar SSNE, fundargerð 889. fundar stjórnar sambandsins og fundargerð 64. fundar stýrihóps Stjórnarráðsins.
b. Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða
Formaður kynnti verkefnið. Tillögur hafa borist frá eftirfarandi sveitarfélögum: Rangárþingi eystra en það verkefni tengist Njálureflinum, Mýrdalshreppi en það verkefni tengist uppbyggingu Halldórsbúðar og Sveitarfélaginu Hornafirði en það verkefni tengist uppbyggingu á Miklagarði.
Stjórn er samþykk því að samtökin skili inn umsóknum fyrir öll þrjú framangreind verkefni enda falla þau vel að skilgreindum áherslum verkefnisins en lögð er áhersla á stuðning við svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf og verða verkefni sem hafa jákvæð áhrif á þróun byggðar og búsetu sett í forgang.
c. Stafrænt ráð sveitarfélaga
Friðrik fór yfir umræður sem fóru fram á fundi stafræns ráðs sveitarfélaganna. Stjórn fjallaði um áherslur og forgangsröðun verkefna á vegum sveitarfélaganna í stafrænum málum á komandi tímabili.
d. Erindi frá Samtökum ferðaþjónustunnar
Formaður kynnti erindi sem samtökunum hefur borist frá Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF). Fyrirsvarsmenn SAF fara fram á niðurfellingu á fasteignagjöldum fyrir ferðaþjónustufyrirtæki. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga geta ekki fellt niður eða breytt álagningu fasteignagjalda. Fyrirsvarsmönnum SAF er bent á að beina erindi sínu til sveitarfélaga.
Stjórn SASS áréttar að ferðaþjónustan hefur staðið undir verulegum hluta hagvaxtar á Íslandi síðustu ár. Eigi ferðaþjónustan áfram að geta gegnt því hlutverki sem henni er ætlað er afar mikilvægt að koma henni ólaskaðri í gegnum COVID-19 tímabilið þannig að greinin geti hratt brugðist við breyttu ástandi. Stjórn SASS hvetur sveitarfélög til þess að leita allra leiða til að standa með fyrirtækjum sem hafa orðið fyrir tekjutapi vegna COVID-19.
Næsti fundur stjórnar verður haldinn föstudaginn 6. nóvember kl. 13:00.
Fundi slitið kl. 18:00.
Eva Björk Harðardóttir
Helgi Kjartansson
Arna Ír Gunnarsdóttir
Björk Grétarsdóttir
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir
Grétar Ingi Erlendsson
Friðrik Sigurbjörnsson
Ari Björn Thorarensen