574. fundur stjórnar SASS
haldinn á Stracta hótelinu á Hellu
27. október 2021, kl. 18:00 – 19:00
Mætt: Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður, Helgi Kjartansson, Lilja Einarsdóttir, Arna Ír Gunnarsdóttir, Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, Friðrik Sigurbjörnsson, Ari Björn Thorarensen, Einar Freyr Elínarsonar og Grétar Ingi Erlendsson. Einnig situr fundinn Bjarni Guðmundsson framkvæmdastjóri SASS sem jafnframt ritar fundargerð.
1. Fundargerðir
Fundargerð 573. fundar staðfest og undirrituð. Eldri fundargerðir einnig undirritaðar.
2. Drög að dagskrá ársþing og aðalfundar SASS
a. Dagskrá ársþings og aðalfundar
Formaður og framkvæmdastjóri kynna lokadrög að dagskrá komandi árþings og aðalfundar SASS sem fram fer á morgun. Stjórn staðfesti dagskrárnar.
b. Nefndir ársþingsins
Farið yfir verklag formanna milliþinganefnda við kynningu á niðurstöðum á ársþinginu.
Tillaga stjórnar að kjörbréfanefnd á komandi ársþingi er:
Aldís Hafsteinsdóttir Hveragerðisbær
Ari Björn Thorarensen Sveitarfélagið Árborg
Kristján S. Guðnason Sveitarfélagið Hornafjörður
3. Önnur mál til kynningar og umræðu
Skýrsla framkæmdastjóra
Framkvæmdastjóri kynnir helstu verkefni í liðnum mánuði og fer yfir innri mál SASS.
Næsti fundur stjórnar verður föstudaginn 5. nóvember nk. kl. 13:00 að Austurvegi 56 Selfossi.
Fundi slitið kl. 19:30.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
Helgi Kjartansson
Lilja Einarsdóttir
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir
Friðrik Sigurbjörnsson
Arna Ír Gunnarsdóttir
Grétar Ingi Erlendsson
Ari Björn Thorarensen
Einar Freyr Elínarson