575. fundur stjórnar SASS
Austurvegi 56
5. nóvemer 2021, kl. 13:00 – 16:00
Þátttakendur: Helgi Kjartansson varaformaður, Lilja Einarsdóttir, Arna Ír Gunnarsdóttir, Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, Friðrik Sigurbjörnsson, Ari Björn Thorarensen, Einar Freyr Elínarson og Grétar Ingi Erlendsson. Ásgerður Kristín Gylfadóttir boðaði forföll og í hennar stað kemur Kristján S. Guðnason. Þá taka þátt Þórður Freyr Sigurðsson (undir dagskrárlið 3) og Bjarni Guðmundsson framkvæmdastjóri SASS, sem jafnframt ritar fundargerð.
1. Fundargerðir
Fundargerð 574. fundar. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
2. Innleiðing á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna
Arnar Haraldsson verkefnastjóri í félagsmálaráðuneytinu kynnir vinnu við innleiðingu á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna en sérstakt innleiðingarteymi er að störfum á vegum ráðuneytisins. Meginmarkmið laganna er að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.
3. Sóknaráætlun Suðurlands
a. Verklagsreglur Uppbyggingarsjóðs Suðurlands.
Sviðsstjóri kynnir uppfærðar verklagsreglur Uppbyggingarsjóðs Suðurlands. Stjórn staðfestir breyttar verklagsreglur.
b. Hausúthlutun 2021
Varaformaður kynnir að fagráðin geri tillögu um að úthluta samtals kr. 39.207.000,- til 74 verkefna. Alls bárust sjóðnum 112 umsóknir. Fjöldi umsókna í flokknum menningarverkefni eru 71 og í flokknum atvinna og nýsköpun eru 41. Fagráð menningar gerir tillögu um að veita 49 verkefnum styrk samtals að fjárhæð kr. 21.320.000,- og fagráð atvinnuþróunar- og nýsköpunar gerir tillögu um að veita 25 verkefnum styrk samtals að fjárhæð kr. 17.887.000,-
Þórður Freyr kynnir nánar vinnu fagráðanna og forsendur sem liggja til grundavallar framangreindum tillögum.
Stjórn samþykkir tillögu fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar en áður en afstaða er tekin til úthlutunar til eins verkefnis er óskað eftir nánari rökstuðningi fagráðsins. Eftirtalin atvinnu-þróunar- og nýsköpunarverkefni hljóta styrk:
Atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrkir:
Heiti verkefnis | Styrkþegi | Fjárhæð |
Þjónustusláturhús og matarsmiðja | Lovísa Rósa Bjarnad. | 2.500.000 |
Kambey | Kamban Visual production slf. | 2.500.000 |
Vínland Vínekran | Margrét Polly Hansen Hauksd. | 1.900.000 |
Hólaskjól / gönguleiðir | Icetrek ehf. | 1.537.000 |
Skyrland | Hafnartún ehf. | 1.000.000 |
Jarðbatterí og haughiti | Ragnhildur Hemmert Sigurðardóttir | 900.000 |
Heiðmerkur krydd | Heiðmörk ehf. | 800.000 |
Fyrirtækjaskógar | Kvistabær ehf. | 750.000 |
Vöruþróun og hönnun á vörum úr íslenskri ullarvoð | Félagsbúið Skarði sf. | 700.000 |
Kindakol – Viðskiptaáætlun | Ársæll Markússon | 700.000 |
Átöppunarverksmiðja Suðurlands | AR Prójekt ehf. | 500.000 |
eySalt | Gígja Óskarsdóttir | 500.000 |
Stofnun sjávarlíftækniskóla unga fólksins | Hólmfríður Sveinsdóttir | 500.000 |
Otoseeds Vöruþróun | Mörður Moli G. Ottesen | 400.000 |
Herjólfsbær – Líf í Herjólfsdal | Eyjatours 1 slf. | 350.000 |
Viking Kitchen – Fish Snakk | Alda Björk Ólafsdóttir | 350.000 |
Tilraunir og vöruþróun með broddmjólk og íslenskan hvítlauk | Fersk þurrkun ehf. | 300.000 |
Vöruþróun afurða úr frostþurrkuðu bólu- og klapparþangi | Fersk þurrkun ehf. | 300.000 |
Flóruspilið – annar stokkur | Guðrún Bjarnadóttir | 250.000 |
Vefsíðugerð Efri-Úlfsstaðir | Hörður Bender | 250.000 |
FabLab-langspil | Eyjólfur Eyjólfsson | 250.000 |
Markaðssókn og kynning á frostþurrkunarþjónustu | Fersk þurrkun ehf. | 200.000 |
Snoðbreiðan – Vöruþróun | Mörður Moli G. Ottesen | 200.000 |
Klifurleiðarvísir | Ásrún Mjöll Stefánsd. | 150.000 |
Sveitabúðin Una vex | Sveitabúðin UNA ehf. | 100.000 |
Stjórn samþykkir verkefnatillögur fagráðs menningar. Eftirtalin menningarverkefni hljóta því styrk:
Menningarstyrkir:
Heiti verkefnis | Styrkþegi | Fjárhæð |
Vínartónl. og skólatónl. á Kirkjubæjarkl. og Vík | Góli ehf. | 950.000 |
Náman | Gullkistan, miðstöð sköpunar ehf. | 800.000 |
Listavinnustofa á Litla Hrauni 2022 | Múrar brotnir, félagasamtök | 750.000 |
Ástin sem eftir er (Fyrri hluti) | Home Soil ehf. | 750.000 |
Þú ert kveikjan – einkasýning Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur | Listasafn Árnesinga | 750.000 |
Jól við hafið 2021 | Lúðrasveit Þorlákshafnar | 700.000 |
Söngleikjasprengja Dansakademíunnar og Tónsmiðjunnar | Artemis-Dans ehf. | 650.000 |
Silfurtúnglið | Leikfélag Hornafjarðar | 600.000 |
Strandverðir sálarinnar | Kristín Björk Kristjánsdóttir | 600.000 |
Nýir íbúar Bláskógabyggðra | Skálholtsstaður | 550.000 |
Voru til börn í gamla daga? | Skálholtsstaður | 550.000 |
Tónahátíð í Flóahreppi – tónleikaröð | Eydís Þorbjörg Indriðadóttir | 550.000 |
Saga Listavinnusetur | Hrefna Lind Lárusdóttir | 500.000 |
Veisla! | Eva Bjarnadóttir | 500.000 |
Snjallvæða vefinn Þjóðsögur á Suðurlandi | Kirkjubæjarstofa | 500.000 |
Myndlistarsýning Hlyns Pálmasonar í Svavarssafni | Menningarmiðstöð Hornafjarðar | 500.000 |
SAGA MUSICA – tónleikar | Bakkastofa ehf. | 500.000 |
Flanerí: SUÐ | Snorri Rafn Hallsson | 400.000 |
Brimrót Menningarsetur október 2021 – febrúar 2022 | Pétur Már Guðmundsson | 400.000 |
Eldgos í bókmenntum, listum og lífinu | Soffía Auður Birgisdóttir | 400.000 |
Sögur úr Eyjum | Vestmannaeyjabær | 400.000 |
Bókasafnið okkar allra – höfundakynningar | Héraðsbókasafn Rangárvallasýslu | 400.000 |
1000 Fætur /Á slóðum sunnlenskra sveitaballa | Filmsýn ehf. | 400.000 |
Árleg leiksýning | Leikfélag Sólheima | 400.000 |
Beint í æð | Leikfélag Selfoss | 400.000 |
Heilinn í Hellinum | Pálmi Freyr Hauksson | 400.000 |
Leiklistarnámskeið / Verkefni í þróun | Leikfélag Hornafjarðar | 400.000 |
Uppsetning á leikriti | Aðalheiður Helgadóttir | 400.000 |
Ræktaðu garðinn þinn, um garðyrkju í Árnessýslu | Héraðsskjalasafn Árnesinga | 400.000 |
Uppsetning sýningar í Skálholti | Prentsögusetur | 400.000 |
Óró – einkasýning Magnúsar Helgasonar | Listasafn Árnesinga | 400.000 |
Í skóginum stóð kofi einn – jóladagskrá Byggðasafns Árnesinga ´21 | Byggðasafn Árnesinga | 350.000 |
Langspilsvaka 2022 | Eyjólfur Eyjólfsson | 350.000 |
Suður-Evrópa og íslensk dægurlög | Vestmannaeyjabær | 350.000 |
„Hvaða Rangæingur er þetta?“ | Héraðsskjalasafn Árnesinga | 300.000 |
Saga og súpa í Sagnheimum | Vestmannaeyjabær | 300.000 |
Buxnadragt – einkasýning Lóu Hjálmtýsdóttur / Lóaboratorium | Listasafn Árnesinga | 300.000 |
HRINGRÁS / ORBIT | Listasafn Árnesinga | 300.000 |
Löng helgi | Stefán Hermannsson | 300.000 |
MUUR | Lind Draumland Völundard. | 300.000 |
Jól á Flúðum | Guðmundur Karl Eiríksson | 300.000 |
Kino á Cafe Vatnajökli | Gísli Magnússon | 300.000 |
Söngsveitin Tvennir tímar, starfsemi og tónleikar 2021-2022 | Söngsveitin Tvennir tímar, félagasamtök | 300.000 |
„Þetta er kunnuglegt andlit“ | Héraðsskjalasafn Árnesinga | 250.000 |
Kristinn Benedikts. sýning á einstöku ljósmyndasafn | Vestmannaeyjabær | 250.000 |
Rithöfundakvöld MMH | Menningarmiðst. Hornafj. | 200.000 |
Flugsaga Hornafjarðar | Vigdís María Borgarsdóttir | 200.000 |
Íslensku húsdýrin | Katrín Jónína Óskarsdóttir | 200.000 |
The Pass | Ásta Vilhelmína Guðmundsd. | 170.000 |
4. Önnur mál til kynningar og umræðu
a. Fundargerðir m.a. stjórna annarra landshlutasamtaka
Lagðar fram til kynningar; fundargerð 30. fundar stjórnar SSNE, fundargerðir 529. og 530. funda stjórnar SSH, fundargerð 164. fundar SSV, fundargerð 70. fundar SSNV, fundargerðir 120. og 121. funda Austurbrúar, fundargerðir aðalfundar, 1. og 2. funda Markaðsstofu Suðurlands og fundargerðir 901. og 902. funda stjórnar sambandsins.
b. Skýrsla framkvæmdarstjóra
Framkvæmdastjóri kynnir helstu verkefni í liðnum mánuði.
c. Niðurstöður og ályktanir ársþings SASS
Varaformaður kynnir hluta af ályktunum nýliðins ársþings samtakanna en meðal verkefna sem óskað er eftir að sveitarfélögin og samtökin taki þátt í að fjármagna má nefna Sinfóníuhljómsveit Suðurlands, Sigurhæðir og Skjálftann – hæfileikakeppni grunnskóla á Suðurlandi.
Ákveðið að fresta umræðu til næsta fundar.
Tillaga lá fyrir ársþingi frá oddvitum sex sveitarfélaga um að breyta samþykktum samtakanna þannig að öll sveitarfélög sem aðild eiga að SASS fái fulltrúa í stjórn samtakanna eða a.m.k. áheyrnarfulltrúa. Samkvæmt gildandi samþykktum sitja níu fulltrúar frá átta sveitarfélögum í stjórn samtakanna. Niðurstaða ársþingsins var að fela stjórn samtakanna að stofna starfshóp með tveimur fulltrúum frá stjórn SASS og einum
fulltrúa frá þeim sveitarfélögum sem óskað hafa eftir að fjölga í stjórn. Markmiðið er að finna leiðir til að bæta upplýsingaflæði til sveitarfélaga sem ekki eiga fulltrúa í stjórn. Stjórn samþykkir að skipa Ásgerði Kristínu Gylfadóttur og Ara Björn Thorarensen í starfshópinn. Framkvæmdastjóra falið að kalla eftir tilnefningu á fulltrúa sveitarfélaganna sem lögðu tillöguna fram. Með hópnum starfar framkvæmdastjóri SASS.
d. Kynnisferð til Danmerkur
Varaformaður kynnir að í ljósi veldisvöxts í fjölda COVID-19 smita hér á landi og í Danmörku hefur stjórn tekið ákvörðun um að hætta við kynnisferðina til Danmerkur að þessu sinni og óska eftir því við ferðaskrifstofuna að fá útlagðan kostnað endurgreiddann. Staðan verður endurmetin þegar sér fyrir endann á COVID faraldrinum.
e. Skipan í verkefnastjórn Orkídeu
Varaformaður kynnir að skipa þurfi varafulltrúa í verkefnastjórn Orkídeu í stað Evu Bjarkar Harðardóttur. Stjórn samþykkir að Björk Grétarsdóttir verði varafulltrúi í verkefnastjórn Orkídeu.
Næsti fundur stjórnar verður haldinn föstudaginn 3. desember nk. að Austurvegi 56 á Selfossi kl. 13:00.
Fundi slitið kl. 15:20.
Helgi Kjartansson
Lilja Einarsdóttir
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir
Friðrik Sigurbjörnsson
Arna Ír Gunnarsdóttir
Grétar Ingi Erlendsson
Ari Björn Thorarensen
Einar Freyr Elínarson
Kristján S. Guðnason