RÚV efnir til opinnar umræðu víðsvegar um landið um þjónustu og starfsemi Ríkisútvarpsins og hlutverks fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Málþing verður haldið á sex stöðum á landinu nú í september og október. RÚV býður alla áhugasama velkomna til að hlusta á erindi og taka þátt í umræðum. Nú er röðin komin að Selfossi og verður málþing í Tryggvaskála, þriðjudaginn 22. september kl. 20:00-22:00
Dagskrá á fundum á landsbyggðinni:
- Ríkisútvarpið í dag og til framtíðar. Staða, hlutverk og stefna,
Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri - RÚV á landsbyggðinni, Freyja Dögg Frímannsdóttir, svæðisstjóri RÚVAK
- Dreifikerfi RÚV, Gunnar Örn Guðmundsson, forstöðumaður tæknideildar RÚV,
- Landinn og Landakortið, Gísi Einarsson, dagskrárgerðarmaður Landans
- Pallborðsumræður
Fundarstjóri: Gísli Einarsson