Á heimasíðu Byggðastofnunar hefur verið opnað fyrir umsóknir vegna flutninga ársins 2015.
Þeir sem geta sótt um eru einstaklingar og lögaðilar sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- einstaklingar sem stunda atvinnurekstur og eru með lögheimili á styrksvæði og lögaðilar sem eru með starfsemi og heimilisfesti á styrksvæði
- umsækjandi þarf að stunda framleiðslu á vöru sem fellur undir c-bálk íslensku atvinnugreinaflokkunarinnar ÍSAT2008.
- innanlandsmarkaður þar sem framleiðsluvaran er seld, til dæmis útflutningshöfn, þarf að vera í að minnsta kosti 245 km frá framleiðslustað.
Hámark styrkja er 200.000 evrur á þriggja ára tímabili.
Ítarlegri upplýsingar má sjá hér á heimasíðu Byggðastofnunar
Umsóknarfrestur er til 31. mars 2016. Um lögbundinn lokafrest er að ræða og ekki tekið við umsóknum sem berast eftir þann tíma.