Skipulagsdagurinn 2016 verður haldinn fimmtudaginn 15. september nk. Um er að ræða heils dags ráðstefnu á Grand Hótel í Reykjavík sem Skipulagsstofnun stendur að í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. Hún er ætluð öllum sem koma að gerð skipulags, sveitarstjórnarmönnum, skipulagsfulltrúum sveitarfélaga, skipulagsráðgjöfum og hönnuðum. Að þessu sinni verður áhersla Skipulagsdagsins á gæði byggðar og umhverfis. Horft verður til þess hvernig beita má skipulagi til að tryggja gæði í byggðu umhverfi almennt og sérstaklega við uppbyggingu ferðamannastaða.
- Ráðstefnugjald er 6.000 kr. – innifalið eru veitingar og hádegisverður.
- Skráning fer fram hér – skráningarfrestur er til 11. september.
- Dagskrá Skipulagsdagsins 2016