Á fundi stjórnar SASS, sem haldinn var 12. nóvember sl., voru lagðar fram breytingartillögur sem forsvarsmenn heilbrigðisstofnananna þriggja á Suðurlandi hafa sent heilbrigðisráðherra og fjárlaganefnd að beiðni heilbrigðisráðuneytisins. Magnús Skúlason forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands sat fundinn og gerði nánari grein fyrir tillögum HSu. Tillögurnar gera ráð fyrir 130 m.kr niðurskurði í stað 412,5 m.kr. sem gerir um 6,5% niðurskurð.
Stjórn SASS samþykkti eftirfarandi ályktun:
,,Stjórn SASS tekur undir tillögur heilbrigðisstofnananna um endurskoðun á niðurskurðartillögum fjárlagafrumvarpsins og hvetur Alþingi og ráðuneyti til að samþykkja framkomnar tillögur þeirra.“
Magnús lagði einnig fram tölur sem sýna að niðurskurðartillaga upp á 412,5 m.kr leiðir til 635 – 685 m.kr. útgjaldaauka fyrir ríkið. Þá er ótalinn kostnaður sjúklinga og aðstandenda sem nemur um 170 m.kr.
Sjá nánar:
Ýmsir hafa óskað eftir upplýsingum um afleiðingar þess, að sjúkrahúsi HSu á Selfossi yrði lokað. Faglegum afleiðingum þess hefur verið lýst í sérstakri samantekt. Varðandi fjárhagslegar afleiðingar er hægt að meta meginstærðir við ákveðna kostnaðarþætti á móti fyrirhuguðum sparnaði. Gróft mat er eftirfarandi:
Fyrirhuguð útgjaldalækkun skv. frumvarpi til fjárlaga 2011 er 412,5 m.kr.
Árlega hafa verið um 1.500 innlagnir á sjúkrahúsi HSu, um 170 fæðingar, auk göngu- og dagdeildarþjónustu.
Sé gert ráð fyrir, að að 1.000 af um 1.500 innlöngum á sjúkrahús HSu verði með sjúkrabíl til Reykjavíkur má gera ráð fyrir að kostnaður við sjúkraflutninga aukist um 50 – 100 m.kr.
Aukin heimahjúkrun gæti kostað amk. um 50 m.kr.
Heimaþjónusta ljósmæðra gæti kostað amk. 10 m.kr.
Aukin þjónusta ljósmæðra á LSH gæti kostað amk. 10 m.kr.
Flytjist um 10.000 legudagar frá HSu á LSH má gera ráð fyrir að það þýði um 500 m.kr. útgjaldaaukningu á LSH. Því til frádráttar gæti komið áður áætlaður aukinn kostnaður við heimahjúkrun, um 50 m.kr.
Gera verður ráð fyrir, að göngu- og dagdeildarþjónusta sérfræðinga flytjist á læknastofur á höfuðborgarsvæðinu. Aukinn kostnaður Sjúkratrygginga Íslands ( SÍ ) vegna þessa yrði um 65 m.kr.
Samtals yrði aukinn kostnaður ríkisins um 635 – 685 m.kr. á móti 412,5 m.kr. fyrirhugaðri útgjaldalækkun.
Aukin útgjöld skjólstæðinga og aðstandenda þeirra gæti orðið eftirfarandi:
Ferðakostnaður, um 10.000 ferðir vegna sérfræðiþjónustu og innlagna, samtals um 100 m.kr.
Aukið vinnutap vegna 8.000 ferða til sérfræðinga á höfuðborgarsvæðinu, samtals um 70 m.kr.