Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita árlega verðlaun fyrir framúrskarandi framlag á sviði menntunar á Suðurlandi sem um leið er hvatning til frekari dáða. Verðlaunin verða veitt í annað sinn nú í haust. Allir þeir sem koma að skólastarfi með einhverjum hætti geta fengið verðlaunin; grunnskólar, leikskólar, framhaldsskólar, símenntunarmiðstöðvar, háskólastofnanir, kennarar; einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélög/skólanefndir, foreldrafélög o.fl.
Veitt verða peningaverðlaun sem nýtt verði til áframhaldandi menntunarstarfs. Þeir aðrir sem tilnefndir verða munu fá formlega viðurkenningu um tilnefninguna. Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í október nk.
Hér með er óskað eftir tilnefningum til verðlaunanna. Rétt til að tilnefna til verðlaunanna hafa allir þeir sem tengjast skóla- og menntunarstarfi með einhverjum hætti. Tilnefningum skal fylgja ítarlegur rökstuðningur. Mennta- og menningarmálanefnd SASS velur úr tilnefningum og veitir verðlaunin. Tilnefningar skulu hafa borist til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56 Selfossi, eigi síðar en 15. september nk.