Frá og með 12. febrúar verða gerðar nokkrar breytingar á akstri Strætó bs. á Suðurlandi. M.a. verður bætt við hádegisferð frá Reykjavík á Selfoss og til baka til Reykjavíkur, tekinn upp akstur í Reykholt og bætt við ferð frá Vík til Hafnar á þriðjudögum.
Nú þegar komin er rúmlega mánaðarreynsla á Suðurlandsaksturinn hefur fjöldi ábendinga borist frá notendum um atriði sem betur mega fara.
Bætt verður við þjónustu við Reykholt, þannig að í ferð leiðar 72 frá Selfossi kl. 13.50 verður ekið um Grímsnes að Laugarvatni og þaðan til baka að Selfossi gegnum Reykholt og Flúðir. Leið 73, sem fer frá Selfossi að Flúðum kl. 15.50, mun aka til baka um Reykholt og Grímsnes á leiðinni að Selfossi. Þá verður bætt við ferð frá Vík til Hafnar á þriðjudögum, svo nú eru í boði ferðir á þeirri leið þrisvar í viku. Í allar þessar ferðir þarf þó áfram að panta fyrirfram. Á sumaráætluninni, sem hefst 3. júní, verða svo tvær daglegar ferðir hvora leið milli Reykjavíkur og Hafnar, sem ekki þarf að panta í fyrirfram.
Ennfremur verða gerðar nokkrar breytingar á tímasetningum á leiðunum 51 og 52 um helgar.
Nánari upplýsingar um breytingarnar á leiðum má sjá hér. Tímatöflur sem gilda frá 12. febrúar nk. má sjá hér.