Tillögum skal skila með tölvupósti á netfangið samkeppni@sass.is eigi síðar en þriðjudaginn 17. apríl 2018. Tillögur sem berast síðar teljast ekki gildar.
Tillögum skal skila á rafrænu formi. Ekki er gerð krafa um ákveðið form eða kaflaskiptingu efnis en rétt er að vekja athygli á þeim viðmiðum sem dómnefnd hefur sett sér. Þátttakendur eru hvattir til að setja tillögur skýrt fram og gera grein fyrir tillögunni á skýran og greinargóðan hátt. Lýsa þarf í texta megininntaki tillögunnar, helstu forsendum, markmiðum og væntum ávinningi. Auk þess er gert ráð fyrir viðeigandi teikningum, myndum, útreikningum, áætlunum o.þ.h. sem máli skipta. Gert er ráð fyrir að tillögur verði kynntar við verðlaunaafhendingu. Ef um er að ræða trúnaðarupplýsingar er mikilvægt að þátttakendur geri grein fyrir slíku í tillögunum. Dómnefnd mun taka tillit til trúnaðarupplýsinga. Aðstandendur samkeppninnar eignast ekki innsendar tillögur og eiga höfundar þeirra áfram allan rétt til að nýta þær samkvæmt höfundalögum. Eftir að keppni lýkur mun SASS eiga forgang að nýtingu verðlaunaðra tillagna í eitt ár, en með því er átt við forkaupsrétt fyrir hönd aðila á Suðurlandi. Viðmið dómnefndar: