Fundargerð:
11. fundur verkefnastjórnar Sóknaráætlunar – 2017
Austurvegi 56, 12. desember, kl. 12:00
Fundinn sátu Unnur Þormóðsdóttir formaður verkefnisstjórnar, Páll Marvin Jónsson (í síma), Bryndís Björk Hólmarsdóttir og Runólfur Sigursveinsson. Sveinn Sæland boðaði forföll.
Einnig sátu fundinn Bjarni Guðmundssin framkv.stj. SASS og Þórður Freyr Sigurðsson sviðsstjóri sem jafnframt ritaði fundargerð.
Formaður verkefnastjórnar, Unnur Þormóðsdóttir setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.
1. Yfirferð tillagna að áhersluverkefnum 2018
Til umræðu á fundinum voru tillögur að áhersluverkefnum 2018. Verkefnastjórn samþykkti eftirfarandi tillögur eftir aðra umræðu. Samþykkt var að fela sviðsstjóra að vinna að uppfærðum verkefnisáætlunum í samræmi við samþykktar upphæðir verkefna og umræður fundarins, í samráði við hlutaðeigandi þar sem við á. Samþykkt að vísa tillögunum til stjórnar SASS til samþykktar og í framhaldi til stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál.
Verkefnatillaga (heiti) | Upphæð |
Umhverfis- og auðlindastefna Suðurlands – 1. áfangi | 10.000.000 |
Umhverfis Suðurland – umhverfisátak | 10.000.000 |
Alþjóðaflugvöllur á Suðurlandi – veðurathuganir í landshlutanum | 5.500.000 |
Hugmyndasamkeppni um nýtingu varmaorku á Suðurlandi | 5.000.000 |
Fagháskólanám á Suðurlandi – tilraunaverkefni | 5.000.000 |
Innleiðing fjarheilbrigðisþjónustu á Suðurlandi | 3.000.000 |
Menningarpassi Suðurlands | 3.000.000 |
Hagnýtar hagtölur á Suðurlandi – 1. áfangi | 2.500.000 |
Upplýsingavefur fyrir fjárfesta – „invest in south“ | 2.500.000 |
Starfamessa á Selfossi 2019 | 2.000.000 |
Starfakynning í Vestmannaeyjum 2018 | 2.000.000 |
Námskeiðaröð fyrir frumkvöðla á Suðurlandi | 2.000.000 |
Nýsköpunarkeppni framhaldsskólanna á Suðurlandi – 1. áfangi | 1.000.000 |
Hvatningarverðlaun á sviði atvinnuþróunar-, nýsköpunar og menningar á Suðurlandi | 1.000.000 |
Fræðsla og samvinna ungmennaráða á Suðurlandi | 500.000 |
Fundi slitið kl. 15:00.