556. fundur stjórnar SASS
Fjarfundur haldinn
3. apríl 2020, kl. 11:00 – 14:00
Þátttakendur: Helgi Kjartansson formaður, Arna Ír Gunnarsdóttir, Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, Björk Grétarsdóttir, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Friðrik Sigurbjörnsson, Grétar Ingi Erlendsson, Ari Björn Thorarensen og Einar Freyr Elínarson. Þá taka þátt á fundinum Þórður Freyr Sigurðsson sviðsstjóri Þróunarsviðs og Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri SASS, sem jafnframt ritar fundargerð.
Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna á fjarfund stjórnar.
.1. Fundargerð
Fundargerð 555. fundar undirrituð.
2. Sóknaráætlunar Suðurlands 2020 – 2024
a. Formaður kynnir að alls bárust 156 umsóknir í fyrri úthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands 2020. Umsóknir í flokki atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna eru 63 og í flokki menningarverkefna eru 93.
Fagráð atvinnu- og nýsköpunar leggur til að veita 27 af 63 verkefnum styrk eða 43% umsókna. Samtals leggur ráðið til að úthluta kr. 16.585.000.
Fagráð menningar leggur til að veita 61 af 93 verkefnum styrk eða ríflega 65% umsókna. Samtals leggur ráðið til að úthluta kr. 22.375.000.
Stjórn samþykkir fyrrgreindar tillögur fagráðanna og eftirtalin verkefni hljóta því styrk:
Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni:
Þjálfi (vinnuheiti) |
2.000.000 |
Marta Rut Ólafsdóttir |
Sunnlenskur metnaður fyrir metani |
1.200.000 |
Bjarni Már Ólafsson |
Umhverfisvænn gróðurmiðill |
1.200.000 |
Óskar Örn Vilbergsson |
Lífdísel verksmiðja |
1.000.000 |
Gísli Daníel Reynisson |
Tjarnarhólaverkefni |
1.000.000 |
Skógræktarfélag Árnesinga |
Áhrif LED topplýs. á forræktun tómata, agúrku og papriku |
850.000 |
Landbúnaðarháskóli Íslands |
Þróun og markaðssetning á Caves of Hella |
800.000 |
Hellarnir við Hellu ehf. |
Slow Adventure Suðurland – ferðaleiðir |
700.000 |
Dyngja Travel ehf. |
Uppspuni – vöruþróun |
650.000 |
Sveitakarlinn ehf. |
Rófusnafs |
600.000 |
Íris Guðnadóttir |
Aldur er bara tala |
500.000 |
Sólrún Erla Gunnarsdóttir |
Beislun vindorku með sívalingum |
500.000 |
Þekkingars. Vestmannaeyja ses |
Efling héraðsfréttablaðsins Eystrahorns |
500.000 |
HLS ehf. |
Fabia – vöruþróun úr íslenskum skógarafurðum |
500.000 |
Guðný Björk Pálmadóttir |
Icelandic Lava Show – endurnýjanleg orka |
500.000 |
Ragnhildur Ágústsdóttir |
Maddabar (vinnutitill) |
500.000 |
Bára Magnúsdóttir |
NPA Setur Suðurlands |
500.000 |
NPA Setur Suðurlands ehf. |
Fjaðrafok |
400.000 |
Myrra Rós Þrastardóttir |
Handsútun á gærum og skinnum |
400.000 |
Ari Svavarsson |
Vörumerkjahönnun og heimasíðugerð |
400.000 |
Aldingróður ehf. |
Öræfaskólinn |
400.000 |
Íris Ragnarsdóttir Pedersen |
Stökkpallur – Softana kaffi skrúb |
300.000 |
Bjarni Einarsson |
Úps – veitingstaður / leirvinnustofa |
300.000 |
Þorgrímur Tjörvi Halldórsson |
Vöruþróun og kynning á nýrri fatalínu |
300.000 |
Jóna Kristín Snorradóttir |
Standbrettaferðir á Laugarvatni, markaðss. |
250.000 |
Sólstaðir ehf. |
Sápur og krem úr íslenskum jurtum úr nærumhverfi |
175.000 |
Þórunn Guðlaugsdóttir |
Treystu mér |
160.000 |
Elísabet Sveinsdóttir |
Menningarverkefni:
Uppsetning sýningar á Njálureflinum |
1.500.000 |
Fjallasaum ehf. |
Sumartónleikar í Skálholti 2020 |
1.200.000 |
Sumartónleikar Skálholtskirkju |
Þorpið í bakgarðinum – eftirvinnsla |
900.000 |
Hin ísl. frásagnarakademía ehf. |
Norðrið |
700.000 |
Listasafn Árnesinga |
Sólheimar 90 ára – afmælishátíð |
700.000 |
Sólheimasetur ses. |
„TÓNA-SERÍAN“ Skaftárhreppi |
500.000 |
Ólafur Elfar Júlíusson |
Einkasafn Skúla Gunnlaugssonar |
500.000 |
Listasafn Árnesinga |
EINS VETRA – (seinni hluti) |
500.000 |
Home Soil ehf. |
Englar og menn – tónlistarhátíð Strandark. 2020 |
500.000 |
Björg Þórhallsdóttir |
Í andartakinu- seinni hluti |
500.000 |
Menningarmiðst. Hornafjarðar |
Útgáfuhátíð vegna útgáfu á Reisubók séra Ólafs Egilssonar |
500.000 |
Sigurhanna Friðþórsdóttir |
VOLAÐA LAND |
500.000 |
Anton Máni Svansson |
Bixí (vinnutitill) |
400.000 |
Guðlaug I Tinna Grétarsdóttir |
Brimrót, menningarrými |
400.000 |
Pétur Már Guðmundsson |
Eyrarland Culture Center |
400.000 |
Konrad Stanislaw Groen |
Grasagrafík í Árnessýslu |
400.000 |
Listasafn Árnesinga |
Heim í (lúðra)sveitina |
400.000 |
Lúðrasveit Vestmannaeyja |
Menningarstarf að Kvoslæk |
400.000 |
Rut Ingólfsdóttir |
Múrar brotnir – listavinnustofa á Litla Hrauni |
400.000 |
Hera Fjölnisdóttir |
Stokkur Art Gallery |
400.000 |
Stefán Hermannsson |
Söngur vonarinnar |
400.000 |
Anna Edit Dalmay |
Tryggvaskáli – hús með sögu |
400.000 |
Sjálfseignastofnun Tryggvaskáli |
Ullarvika 2020 – South Iceland Woolweek |
400.000 |
Þingborg svf. |
Kötlumót 2020 |
350.000 |
Karlakórinn Jökull |
Máttur Söngsins á hvunndags og tillidögum |
350.000 |
Eyrún Jónasdóttir |
Vírdós (tónlistarh. óhefðb. hljóðfæra) |
350.000 |
Vilhjálmur Magnússon |
„Er þetta Rangæingur?“ |
300.000 |
Héraðsskjalasafn Árnesinga |
Bach og 300 ára ártíð Jóns Vídalín á Skálholtshátíð |
300.000 |
Jón Bjarnason |
Djöflaeyjan |
300.000 |
Leikfélag Selfoss |
Heimskonan, húsið og íslenski hesturinn – sumarsýning 2020 |
300.000 |
Byggðasafn Árnesinga |
Hugverk og listasm. á Landsmóti hestamanna |
300.000 |
Hugverk í Heimabyggð |
Íslenskuþjálfun aðgengileg á netinu |
300.000 |
Sigrún Sigurgeirsdóttir |
Kleinur – íslenskt leikverk |
300.000 |
Magnþóra Kristjánsdóttir |
Konukvöld Konubókastofu „Leyndardómar |
300.000 |
Konubókastofan, félagasamtök |
Langspilsvaka 2020 |
300.000 |
Eyjólfur Eyjólfsson |
Latína er list mæt |
300.000 |
Bára Grímsdóttir |
Listasmiðja við Ströndina |
300.000 |
Alda Rose Cartwright |
Myndlistarnámskeið í Íslenska bænum sumarið 2020 |
300.000 |
Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir |
Órói |
300.000 |
Sædís Harpa Stefánsdóttir |
Selló á ferð um Suðurland |
300.000 |
Unna Björg Ögmundsdóttir |
Spamalot – söngleikur |
300.000 |
Leikfélag Vestmannaeyja |
Suðurlands Djazz |
300.000 |
Sigurgeir Skafti Flosason |
Sumarnámskeið í teikningu |
300.000 |
Elín María Halldórsdóttir |
Fiðlufjör á Hvolsvelli 2020 |
275.000 |
Chrissie Telma Guðmundsd. |
Efnisljóð frá Fagurhólsmýri |
250.000 |
Eva Bjarnadóttir |
Rangárbakkar, saga stórmóta á Suðurlandi! |
250.000 |
Rangárb., þjóðal. Ísl. hests. ehf. |
Víkingar á Þingborg |
250.000 |
Víkingafélag Suðurlands |
Afmælishátíð í Múlakoti |
200.000 |
Vinaf. gamla bæjari. í Múlakoti |
Barnastarf Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar |
200.000 |
Menningarmiðst. Hornafjarðar |
Ljósmyndasýningin „Heima“ í Stokkur Art Gallery |
200.000 |
Hanna Siv Bjarnardóttir |
Píanóið og ég- óvissuferð |
200.000 |
Glódís Margrét Guðmundsd. |
Sunnlenskir Suzuki tónar |
200.000 |
Ingunn Helgadóttir |
Söngur á öllum einbreiðum brúm í Austur-Skaftafellssýslu |
200.000 |
Kvennakór Hornafjarðar |
Viðburðir ætlaðir gestum á Landsmóti hestamanna 2020 |
200.000 |
Hellarnir við Hellu ehf. |
Kvöldið er fagurt, tónleikaröð |
150.000 |
Eyvindartunga ehf. |
Siggi Björns í Eyjum á Goslokahátíð |
150.000 |
Kristín Jóhannsdóttir |
STARA: Tónlist Halldórs Smárasonar |
150.000 |
Halldór Music slf. |
Sundlaugardiskó |
150.000 |
Grétar Þór Eyþórsson |
Hringur fagnar 15 ára afmæli |
100.000 |
Hringur kór eldrib. í Rangárþ. |
Íslandsmeistaramót í rúningi |
100.000 |
Félag sauðfjárb. Rangárvallas. |
Tjarnarsýn – Sólheimum í Grímsnesi |
100.000 |
Náttúrust. Suðausturlands ses. |
b. Núverandi aðstæður, af völdum Covid-19 veirunnar, valda því að erfitt verður að ganga frá samningum við styrkþega með hefðbundnum hætti. Vegna þessa heimilar stjórn framkvæmdastjóra að útfæra samningsgerðina með rafrænum hætti.
c. Skipulag við ráðstöfun fjármuna
Varðandi vinnuna framundan hafa ólík sjónarmið komið fram um hvernig verja skuli þeim fjármunum sem til ráðstöfunar eru hjá Sóknaráætlun Suðurlands. Von er á viðbótarfjármunum frá ríkinu til landshlutasamtakanna samtals 200 m.kr. sem verja á til atvinna- og nýsköpunar.
Framkvæmdastjóra falið að taka saman minnisblað um málið og senda á stjórn. Málið verður afgreitt á fundi stjórnar sem haldinn verður fljótlega eftir páska.
3. Önnur mál til kynningar og umræðu
a. Fundargerðir stjórna annarra landshlutasamtaka og fleiri
Lagðar fram til kynningar, fundargerð 151. fundar stjórnar SSV, 754. fundar stjórnar SSS, 7. fundar stjórnar SSNE, 484. fundar stjórnar SSH, 24. fundar Vestfjarðastofu og 880. fundar stjórnar sambandsins.
b. Húsnæðisúrræði fyrir nemendur við FSu
Formaður starfshópsins, Einar Freyr Elínarson, kynnti vinnu starfshópsins. Stjórn SASS samþykkir eftirfarandi áskorun til mennta- og menningarmálaráðherra:
Stjórn SASS skorar á Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, að aðhafast tafarlaust vegna undirbúnings húsnæðisúrræðis fyrir nemendur við Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSu).
Rúmir þrír mánuðir eru nú síðan að þarfagreiningu var skilað til mennta- og menningarmálaráðuneytisins eins og óskað hafði verið eftir. Þrátt fyrir margítrekaðar beiðnir af hálfu formanns starfshóps á vegum SASS og þrátt fyrir ítrekuð loforð ráðherra um að svör muni berast þá hafa engin skýr svör borist frá ráðuneytinu um stöðu málsins.
Sveitarstjórnir allra sveitarfélaga sem koma að rekstri FSu samþykktu haustið 2019 samhljóða ályktun þar sem þess er krafist að starfrækt verði heimavist við skólann. Ráðherra var afhent ályktunin á fundi í september 2019. Aðdragandi málsins er þó enn lengri enda hafa Samtök sunnlenskra sveitarfélaga ítrekað ályktað um málið frá árinu 2016 þegar starfsemi heimavistar var hætt og því ekki um nýtt mál á borði ráðuneytisins að ræða.
c. Almenningssamgöngur – uppgjör fyrir árið 2019
Framkvæmdastjóri kynnti óendurskoðað uppgjör vegna reksturs almenningssamgangna árið 2019. Samkvæmt uppgjörinu er tap af rekstrinum á liðnu ári um 4,5 m.kr. Hann kynnti einnig niðurtöðu af rekstrinum á árabilinu 2012 – 2019 eða þann tíma sem samtökin hafa séð um rekstur almenningssamgangna á Suðurlandi fyrir ríkið en Vegagerðin var viðsemjandi samtakanna. Eins og kunnugt er tók Vegagerðin yfir rekstur almenningssamgangna á landsbyggðinni um nýliðin áramót. Stofnunin vinnur nú að gerð úboðsgagna og ráðgert er að bjóða akstursþjónustuna út á árinu.
d. COVID-19-kórónuveiran
Erindi barst frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þann 12. mars þar sem það, f.h. ríkisins, óskaði eftir samantekt um mögulegar flýtiframkvæmdir sem ríki og sveitarfélög gætu farið í á Suðurlandi til að stemma stigum við áhrifum á efnahagslífið vegna Covid-19 veirunnar. Samtökin tóku saman tillögur sem unnar voru í samráði við sveitarstjóra aðildarsveitarfélaganna.
Stjórn SASS hefur miklar áhyggjur af atvinnuleysi á Suðurlandi. Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar frá því í mars sl. var atvinnuleysið á Suðurlandi að meðaltali 7,5% í mars en gert er ráð fyrir að það verði að meðaltali 12,9% í apríl. Landsmeðaltalið er á sama tímabili áætlað 14%.
Veitinga- og gistiþjónusta eru sem dæmi 29% af atvinnutekjum í Skaftafellssýslum. Það er því ljóst að breytt landslag í komu ferðamanna hefur mikil áhrif á landshlutann. Stjórn SASS skorar á ríkisvaldið að taka tillit til þessara forsendna þegar litið er til aðgerða. Það verði einnig gert þegar sjávarútvegsráðherra afgreiðir skýrslu um 5,3% veiðiheimildir. Einnig hvetur stjórn SASS aðildarsveitarfélög sín til að standa við framkvæmdaáætlanir sínar og eftir aðstæðum taki þau þátt í flýtiframkvæmdum.
Stjórn SASS ítrekar þakkir til viðbragsaðila fyrir gott og óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins.
e. Önnur mál
Formaður sagði frá tveimur erindum sem stjórn hefur borist. Annað er frá Sveitarfélaginu Ölfusi og það tengist uppbyggingu á þekkingarsetri í sveitarfélaginu. Grétar Ingi kynnti erindið á fundinum. Hitt er frá Landsmóti hestamanna 2020 en ósk er um að vera með sérstakt áhersluverkefni, fjármagnað af Sóknaráætlun Suðurlands, sem gengur út á markaðssetningu á landsmótinu. Erindin verða afgreidd síðar.
Næsti fundur stjórnar verður haldinn fljótlega eftir páska.
Fundi slitið kl. 13:22.
Helgi Kjartansson
Arna Ír Gunnarsdóttir
Björk Grétarsdóttir
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir
Ari Björn Thorarensen
Grétar Ingi Erlendsson
Friðrik Sigurbjörnsson
Einar Freyr Elínarson