Markmið
Fræða og miðla upplýsingum um umhverfismál til Sunnlendinga og hvetja til umhverfismeðvitaðra ákvarðana í daglegu lífi.
Verkefnislýsing
Miðlun fræðslu og fróðleiks um umhverfismál gegnum fréttabréf, heimasíðu, samfélagsmiðla og pistla í héraðsfréttablöðum.
Tengsl við sóknaráætlun 2020-24
Tvö af markmiðum sóknaráætlunar 2020-2024 eru að auka bindingu og draga úr losun CO2 um 10% fyrir 2025.
Tengsl við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Aukin fræðsla um umhverfismál styður við mörg markmið Sameinuðu þjóðanna, sérstaklega þó þeirra sem stuðla að minna sorpi og mengun, t.d. markmið 6.3 sem fjallar um vatnsgæði.
Árangursmælikvarðar
Sýnileiki og regluleg miðlun fræðslu.
Lokaafurð
Bætt umhverfisvitund.
Verkefnið felur ekki í sér lokaafurð enda er um miðlun upplýsinga og fræðslu að ræða, verkefnið ætti að halda áfram þar til ekki er lengur þörf á umhverfisfræðslu.
Verkefnastjóri
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir og Ingunn Jónsdóttir
Framkvæmdaraðili
SASS
Samstarfsaðilar
Sveitarfélög á Suðurlandi, Sorpstöð Suðurlands, Terra, Íslenska gámafélagið, Björney umhverfisráðgjöf, UMÍS ehf. Environice, Vestfjarðarstofa.
Heildarkostnaður
8.000.000 kr.
Þar af framlag úr Sóknaráætlun
8.000.000 kr.
Ár
2020
Upphaf og lok verkefnis
verkefnið hefst í febrúar 2020 og lýkur í janúar 2021 (verkefni er þegar í gangi og skipulagt til eins árs í einu)
Staða
Í vinnslu
Númer
203011
Staða verkefnis
Verkefninu var frestað um tíma vegna COVID-19 faraldursins en hefur nú farið aftur af stað og er verið að vinna að nýrri áætlun vegna næstu mánuða.
Á þeim mánuðum sem verkefnið var í gangi á árinu hefur Umhverfis Suðurland verið áberandi á samfélagsmiðlum þar sem markmiðið var að deila daglega áhugaverðu efni tengt umhverfismálum. Einnig var verkefnið nokkuð áberandi í héraðsfréttablöðum ásamt því að senda út mánaðarlegt fréttabréf. Stefnt er að því að fara í spennandi hvatningarátak á næstkomandi mánuðum þar sem Sunnlendingar verða virkjaðir til þátttöku.
Heimasíða verkefnis: www.umhverfissudurland.is
Facebook: www.facebook.com/umhverfissudurland
Instagram: www.instagram.com/umhvsud
Hluti af því efni sem við höfum unnið og deilt á samfélagsmiðla: