580. fundur stjórnar SASS
Austurvegi 56 Selfossi
1. apríl 2022, kl. 12:30-14:00
Mætt: Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður, Helgi Kjartansson varaformaður, Arna Ír Gunnarsdóttir, Ari Björn Thorarensen, Einar Freyr Elínarson, Grétar Ingi Erlendsson, Lilja Einarsdóttir, Njáll Ragnarsson og Bryndís Eir Þorsteinsdóttir. Jóna Sigríður Guðmundsdóttir og Friðrik Sigurbjörnsson boðuðu forföll. Þá taka þátt Þórður Freyr Sigurðsson sviðsstjóri Þróunarsviðs og Bjarni Guðmundsson framkvæmdastjóri SASS, sem jafnframt ritar fundargerð.
Formaður býður fundarmenn velkomna.
1. Fundargerð
Fundargerð 579. fundar staðfest og undirrituð. Eldri fundargerðir undirritaðar.
2. Sóknaráætlun Suðurlands
Uppbyggingarsjóður Suðurlands fyrri úthlutun 2022
Í byrjun mars rann út umsóknarfrestur til að sækja um styrk í Uppbyggingarsjóð Suðurlands í fyrri úthlutun 2022. Alls bárust 90 umsóknir, sem er töluvert færri umsóknir en hafa borist í síðustu úthlutanir. Umsóknirnar skiptust þannig; 59 umsóknir bárust í flokk menningarverkefna og 31 umsóknir í flokk atvinnu- og nýsköpunarverkefna.
Fagráðin gera tillögu um að úthluta alls kr. 35.935.000,- til samtals 60 verkefna. Fagráð menningar gerir tillögu um að veita 43 verkefnum styrk af 59 eða 73% umsókna samtals að fjárhæð kr. 21.200.000,- en úthlutun reyndist vandasöm fyrir fagráðið, þar sem gæði umsókna voru mikil og verkefnin verðug styrks.
Fagráð atvinnuþróunar og nýsköpunar gerir tillögu um að veita 17 verkefnum styrk af 31 eða 55% umsókna samtals að fjárhæð kr. 14.735.000,-. Ekki voru gerðar fleiri tillögur sökum þess að aðrar umsóknir uppfylltu ekki formskilyrði eða var á annan hátt ábótavant.
Þórður Freyr kynnir nánar vinnu fagráðanna og forsendum sem liggja til grundavallar tillögunum.
Stjórn samþykkir tillögu fagráðs menningar óbreyttar. Eftirtalin menningarverkefni hljóta því styrk:
Heiti verkefnis |
Umsækjandi |
Fjárhæð |
Skjálftinn – fyrir öll ungmenni á Suðurlandi | Biðukolla ehf. | 1.000.000 |
Hafsjór / Oceanus – alþjóðleg listahátíð á Eyrarbakka | Byggðasafn Árnesinga | 1.000.000 |
Stúlkan í turninum skólatónleikar | Góli ehf. | 1.000.000 |
Sumartónleikar í Skálholti 2022 | Sumartónleikar Skálholtskirkju | 1.000.000 |
INSIDE OUT Samsýning alþjóðlegra listamanna og fanga | Múrar brotnir, félagasamtök | 1.000.000 |
Suðurlandsdjazz | Sigurgeir Skafti Flosason | 900.000 |
Undirliggjandi minni | Ólafur Sveinn Gíslason | 800.000 |
Hafsjór Oceanus | Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir | 800.000 |
Sælureitir í suðri | Kristín Björk Kristjánsdóttir | 800.000 |
Eruð þið ánægð ef þið fáið að spyrja að einhverju? | Listasafn Árnesinga | 800.000 |
Fiðlufjör 2022 | Chrissie Telma Guðmundsdóttir | 700.000 |
Húskveðja | Menningarmiðstöð Hornafjarðar | 600.000 |
Eider Project-Æðarrækt tilraun | Menningarmiðstöð Hornafjarðar | 600.000 |
Englar og menn – Tónlistarhátíð Strandarkirkju 2022 | Englar og menn ehf. | 600.000 |
Hreyfing í föstum formum | Menningarmiðstöð Hornafjarðar | 600.000 |
Stelpur filma á landsbyggðinni | Inga Margrét Jónsdóttir | 500.000 |
Norðurljósablús 2022 tónlistarhátíð | Blús- og rokkklúbbur Hornafjarðar | 500.000 |
Big Country Ball með gímaldin, Jóhanni Morávek og Lúðrasveit | Gísli Magnússon | 500.000 |
Hleðslunámskeið_Torffjós | Hannes Rúnar O Lárusson | 500.000 |
Hátíðartónleikar á Skálholtshátíð 2022 | Jón Bjarnason | 500.000 |
Njála í myndum | Þorsteinn Jónsson | 500.000 |
Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í Listasafni Árnesinga | Góli ehf. | 400.000 |
Tæknivæðing náttúrugripasafns Vestmannaeyja | The Beluga Operating Company ehf. | 400.000 |
Lögin hans Vosa | Félag um Tyrkjaránssetur í Vestmannaeyjum | 350.000 |
Íslensku þjóðlögin á framandi slóðum | Vestmannaeyjabær | 350.000 |
Skapandi rými | Midgard Adventure ehf. | 350.000 |
Bókverkasmiðjur með Lóu H. Hjálmtýsdóttur | Listasafn Árnesinga | 300.000 |
Enskir gullaldarsöngvar | Eyjólfur Eyjólfsson | 300.000 |
Ratleikur – útfærsla | Listasafn Árnesinga | 300.000 |
Systradúó | Elísabet Anna Dudziak | 300.000 |
Tónastund | Katrín Birna Sigurðardóttir | 300.000 |
Kristinn Benediktsson ljósmyndasýning | Vestmannaeyjabær | 300.000 |
Hugverk og listasmiðja á Landsmóti hestamanna | Hugverk í Heimabyggð | 300.000 |
Sjávarföll | Hjördís Jóhannsdóttir | 300.000 |
Með Vík í vasanum | Kötlusetur ses. | 300.000 |
Málþing um myndlæsi | Listasafn Árnesinga | 250.000 |
Sumarnámskeið í Listasafni Árnesinga | Listasafn Árnesinga | 200.000 |
Listasafn Árnesinga á arabísku | Listasafn Árnesinga | 200.000 |
Gramsað í gömlum nótum | Sunnan 4 ehf. | 200.000 |
Af hverju Ísland? Podcast | Vestmannaeyjabær | 200.000 |
Gluggar í Skálholti – Tónleikar | Jón Bjarnason | 200.000 |
Styrkja safnamuni | Fischersetur á Selfossi | 100.000 |
Hagyrðingakvöld | Harmonikufélag Hornafjarðar | 100.000 |
Bryndís Eir víkur af fundi þar sem fyrirtæki sem hún tengist á umsókn í flokk atvinnu- og nýsköpunarverkefna. Það er gert til að tryggja málsmeðferð við úthlutunina og er til samræmis við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011.
Stjórn samþykkir tillögu fagráðs atvinnuþróunar- og nýsköpunar óbreytta. Eftirtalin atvinnu-þróunar- og nýsköpunarverkefni hljóta því styrk:
Heiti verkefnis |
Umsækjandi |
Fjárhæð |
Smjér | Smjer ehf. | 2.000.000 |
Bakland að Lágafelli | Halldór Áki Óskarsson | 1.500.000 |
Áskot hestaþjálfunarstöð | Kalsi ehf. | 1.500.000 |
Kambey | Kamban Visual production slf. | 1.500.000 |
Íslenskt hágæða hvítlaukssalt unnið úr vannýttu hráefni | Fersk þurrkun ehf. | 1.000.000 |
Smart Kart Vol.I | Festivus ehf. | 1.000.000 |
Tilraunir og vöruþróun með íslenskt Wasabi og sveppi | Fersk þurrkun ehf. | 1.000.000 |
Eldtungur Hot Sauce – Markaðssókn | Laufey Sif Lárusdóttir | 800.000 |
Íslensk furutré – eiginleikar og virkni til jurtalækninga | Katrín Erla Kjartansdóttir | 800.000 |
Meiri hreyfi-afþreying, kort af leiðum og ratleikur | Guðmundur Fannar Markússon | 600.000 |
Markaðssetning á Hlöðueldhúsinu í Þykkvabæ | Loki 28 ehf. | 500.000 |
SKRÚFAN vistvænt sköpunarhús | Sigrún Þuríður Runólfsdóttir | 500.000 |
Sátt í Sorg | Valgerður Helga Einarsdóttir | 500.000 |
Viðskiptaáætlun, hönnun og vöruþróun | AWE ehf. | 500.000 |
Uppbygging þurrkaðstöðu fyrir innlent timbur | Skógræktarfélag Árnesinga | 450.000 |
Zip Island | Sindri Ólafsson | 400.000 |
Fjallaull sf. | Hildur Hjálmsdóttir | 185.000 |
Bryndís Eir kemur á fundinn að lokinni umfjöllun og afgreiðslu.
3. Önnur mál til kynningar og umræðu
a. Fundargerðir m.a. stjórna annarra landshlutasamtaka
Lagðar fram til kynningar; fundargerðir 35. og 36. funda stjórnar SSNE, fundargerð 537. fundar stjórnar SSH og 105. fundar svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins, fundargerð 777. fundar stjórnar SSS, fundargerð 167. fundar stjórnar SSV, fundargerð 74. fundar stjórnar SSNV, fundargerðir 5. og 6. stjórnafunda Markaðsstofu Suðurlands og fundargerðir 907. og 908. funda stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélag.
b. Skýrsla framkvæmdarstjóra
Framkvæmdastjóri kynnir helstu verkefni í liðnum mánuði og hvað framundan sé.
Stjórn samþykkir að bjóða framvegis þingmönnum Suðurkjördæmis á mánaðarlega kynningarfundi stjórnar með kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum á Suðurlandi.
c. Fjármálaáætlun ríkisins 2023-2027
Formaður kynnir að fjármálaáætlun ríkisins 2023 – 2027 sé fram komin. Sveitarstjórnir eru hvattar til að fjalla um áætlunina.
d. ART þjónusta – stefnumótun 2022-2024
Formaður kynnir að unnið hefur verið að stefnumótun fyrir ART verkefnið fyrir árin 2022 – 2024. Vinnan fór að mestu fram á fundum ART teymisins með ráðgjafa í febrúar og mars 2022 en auk þess byggir hún á vinnufundum teymisins með framkvæmdastjóra SASS í upphafi árs 2022.
Umræðu verður fram haldið þegar útfærlsa aðgerðaáætlunar liggur fyrir.
e. Skýrsla tengd málefnum fatlaðra
Formaður kynnir að LOF-hópurinn svokallaði, sem hefur verið að vinna kostnaðargreiningu á kostnaði sveitarfélaganna við þjónustu við fatlað fólk, hafi að mestu lokið við gerð skýrslunnar og hún verði útgefin fljótlega.
f. Matvælasjóður
Formaður kynnir að opnað hafi verið fyrir umsóknir í Matvælasjóð en heildarúthlutunarfé sjóðsins er 593 m.kr. Hlutverk sjóðsins er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu. Umsóknarfrestur er til 19. apríl nk.
g. Almenningssamgöngur á landsbyggðinni
Framkvæmdastjóri vekur athygli á morgunaverðarfundi Vegagerðarinnar um almenningssamgöngur á landsbyggðinni. Stofnunin hefur það verkefni að fylgja eftir stefnu stjórnvalda í almenningssamgöngum hvort heldur sem er í lofti, láði eða legi. Vegagerðin ber þannig ábyrgð á heildstæðu leiðarkerfi með ferjum, ríkisstyrktu flugi og almenningsvögnum á landsbyggðinni og að tryggja þannig örugga tengingu á milli byggðarlaga. Á fundinum var kynnt hvernig starfi Vegagerðarinnar í þessum málum er háttað og hvað framtíðin gæti borið í skauti sér. Einnig var fjallað um Herjólf sem þjónar almenningssamgöngum. Upptaka af fundinum er aðgengileg hér.
Næsti fundur stjórnar verður haldinn mánudaginn 25. apríl nk. kl. 13:00. Um fjarfund verður að ræða.
Fundi slitið kl. 14:00
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
Helgi Kjartansson
Lilja Einarsdóttir
Arna Ír Gunnarsdóttir
Grétar Ingi Erlendsson
Ari Björn Thorarensen
Einar Freyr Elínarson
Njáll Ragnarsson
Bryndís Eir Þorsteinsdóttir