589. fundur stjórnar SASS
Fjarfundur
4. nóvember 2022, kl. 12:30 – 15:00
Þátttakendur: Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður, Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, Grétar Ingi Erlendsson, Einar Freyr Elínarson, Árni Eiríksson og Arnar Freyr Ólafsson. Jóna Sigríður Guðmundsdóttir mætti í forföllum Njáls Ragnarssonar, Sandra Sigurðardóttir í forföllum Jóhönnu Ýrar Jóhannsdóttur og Bragi Bjarnason í forföllum Brynhildar Jónsdóttur. Þórður Freyr Sigurðsson sviðsstjóri Þróunarsviðs tekur þátt í fundinum og ritar fundargerð.
1. Sóknaráætlun Suðurlands – menningarstyrkir Uppbyggingarsjóðs Suðurlands
Í byrjun október rann út umsóknarfrestur til að sækja um styrk í Uppbyggingarsjóð Suðurlands í síðari úthlutun ársins. Alls bárust 90 umsóknir og er það sami fjöldi umsókna og í fyrri úthlutun ársins. Umsóknirnar skiptust þannig; 62 umsóknir bárust í flokki menningarverkefna og 28 umsóknir í flokki atvinnu- og nýsköpunarverkefna. Fagráðin gerðu tillögu um að úthluta alls kr. 32.600.000,- til samtals 58 verkefna.
Fagráð menningar gerði tillögu um að veita 44 verkefnum styrk samtals að fjárhæð kr. 19.500.000,-. Þórður Freyr kynnir nánar vinnu fagráðs menningar og þær forsendur sem lágu til grundavallar tillögunum. Stjórn samþykkir tillögur fagráðsins óbreyttar.
Eftirfarandi menningarverkefni hljóta styrk:
Heiti verkefnis | Umsækjandi | Fjárhæð |
ÁSTIN SEM EFTIR ER (SEINNI HLUTI) | Home Soil ehf. | 1.000.000 |
Páskatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands 2023 | Góli ehf. | 1.000.000 |
Söngkeppni NFSu (Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurlands) | Sigríður Fjóla Þórarinsdóttir | 900.000 |
Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands í Árnesi | Góli ehf. | 900.000 |
Atvinna og virkni | Anna Edit Dalmay | 800.000 |
60 ára – Afmælissýning Listasafns Árnesinga | Listasafn Árnesinga | 800.000 |
,,Máttugar meyjar“ – bókmenntahátíð | Konubókastofan, félagasamtök | 700.000 |
Blámi- myndlistasýning í Svavarssafni | Menningarmiðstöð Hornafjarðar | 700.000 |
Ásgrímsleiðin | Byggðasafn Árnesinga | 600.000 |
Norðurljósablús 2023 tónlistarhátíð | Blús- og rokkklúbbur Hornafjarðar | 600.000 |
Þollóween | Viðburðarfélagið Þollóween | 500.000 |
We are Vík – A picture of community | Anna Marti Anguera | 500.000 |
Góða nótt – Vögguvísur í heimabyggð | Hólmfríður Ósk Samúelsdóttir | 500.000 |
Raddir úr Rangárþingi (ytra) | Menningarfélagið Kári í jötunmóð | 500.000 |
Colors in the town | Zoltán Barát | 450.000 |
Vox Celestice | Júlíus Óttar Björgvinsson | 450.000 |
Skapað í smiðju | Byggðasafn Árnesinga | 400.000 |
Krakka og ungmennaklúbbur Svavarssafns | Menningarmiðstöð Hornafjarðar | 400.000 |
Listasmiðja Náttúrunnar með Gíslínu Dögg og Jónu Heiðu | Gíslína Dögg Bjarkadóttir | 400.000 |
1000 Fætur / Á slóðum sunnlenskra sveitaballa | Filmsýn ehf. | 400.000 |
Rithöfundakvöld MMH | Menningarmiðstöð Hornafjarðar | 350.000 |
Gömlu leikföngin | Vestmannaeyjabær | 350.000 |
Margt veður til í kvenna höndum | Kvenfélagið Eining | 350.000 |
Plastúra | Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnarson | 350.000 |
Pop-up sýningar á Suðurlandi | Guðrún Arndís Tryggvadóttir | 350.000 |
Samstarf við kóra – Náttúruvernd og Friðarboðskapur | Bakkastofa ehf. | 350.000 |
„Sat við gluggann jólasveinn“ – jóladagskrá Byggðasafns Árn. | Byggðasafn Árnesinga | 300.000 |
Gigg á Glæsivöllum | Bryndís Sigurðardóttir | 300.000 |
Konukvöld Konubókastofu „Leyndardómur yndisþokkans“ | Konubókastofan, félagasamtök | 300.000 |
Mannvist á Mýrum – Fornbýli í landslagi | Menningarmiðstöð Hornafjarðar | 300.000 |
Menningarsmiðjan Brimrót á Stokkseyri | Pétur Már Guðmundsson | 300.000 |
Heimildirnar, fræðsluverkefni | Héraðsskjalasafn Árnesinga | 300.000 |
„Kannast þú við þennan Rangæing?“ | Héraðsskjalasafn Árnesinga | 300.000 |
Part 2 Technology Upgrade of Natural History Collection | The Beluga Operating Company ehf. | 300.000 |
MUUR | Lind Draumland Völundardóttir | 300.000 |
Tónahátíð í Flóahreppi 2022 | Flóahreppur | 300.000 |
Tónlistarferðalagið frá Ungverjalandi til Vestmannaeyja | Júlíanna S. Andersen | 300.000 |
mmm-kvöld á aðventu | Hveragerðisbær | 250.000 |
Summa og Sundrung – fræðsluefni | Listasafn Árnesinga | 250.000 |
50 ár frá Heimaeyjargosinu í tali og tónum | Vestmannaeyjabær | 250.000 |
Minningatónleikar Vosa | Félag um Tyrkjaránssetur í Vestmannaeyjum | 250.000 |
Smiðjuþræðir – lokasýning og uppskeruhátíð | Listasafn Árnesinga | 200.000 |
Eflandi leiklist á ströndinni | Magnús Jóhannes Magnússon | 200.000 |
„caroling“ söngur | Erna Gísladóttir | 200.000 |
Umræður um styrkveitingar í flokki atvinnu- og nýsköpunarverkefna eru færðar aftur fyrir síðasta fundarlið.
2. Skýrsla formanns
Ásgerður upplýsir um samskipti og fundi sem hún hefur sótt sem formaður SASS, s.s. með framkvæmdarstjórum og formönnum landshlutasamtaka, Sambandinu, Innviðaráðherra, Íslandsstofu og fjárlaganefnd Alþingis. Í tengslum við ársþing SASS á Höfn fundaði stjórn með bæjarstjórn sveitarfélagsins Hornafjarðar. Eru bæjarstjórninni færðar bestu þakkir fyrir móttökurnar. Jafnframt upplýsir Ásgerður að nú stendur yfir vinna með niðurstöður ársþingsins, s.s. áherslupunkta nefnda ársþingsins og tillögur að verkefnum. Verður nánar fjallað um þá vinnu á næsta fundi stjórnar.
3. Önnur mál til kynningar og umræðu
a. Fundargerðir m.a. stjórna annarra landshlutasamtaka
Lagðar fram til kynningar; fundargerðir 20. og 21. fundar Stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál, fundargerðir 41. og 42. fundar stjórnar SSNE, fundargerð 84. fundar stjórnar SSNV og fundargerð fagráðs umhverfismála SSNE.
Grétar og Arnar yfirgefa fundinn að fundarlið loknum.
4. Sóknaráætlun Suðurlands – atvinnu- og nýsköpunarstyrkir Uppbyggingarsjóðs Suðurlands
Eins og fram kemur undir 1. dagskrárlið bárust sjóðnum 28 umsóknir í flokki atvinnu- og nýsköpunarverkefna. Fagráð atvinnu- og nýsköpunar gerði tillögu um að úthluta alls kr. 13.100.000,- til samtals 14 verkefna.
Þórður Freyr kynnir nánar vinnu fagráðs atvinnu- og nýsköpunar og þær forsendur sem lágu til grundavallar tillögunum. Stjórn samþykkir tillögur fagráðsins óbreyttar.
Eftirtalin atvinnu- og nýsköpunarverkefni hljóta styrk:
Heiti verkefnis | Umsækjandi | Fjárhæð |
Afurðagerð og vörumerkjaþróun fyrir lífefnavinnslu | Langa ehf. | 2.000.000 |
Hvítur | Hrafnkell Guðnason | 1.500.000 |
Veiðar á rauðátu við Suðurströndina | Þekkingarsetur Vestmannaeyja ses | 1.500.000 |
Íshampur (framhaldsumsókn) | Últra ehf. | 1.000.000 |
Framleiðsla gæludýrafóðurs | Fiskafurðir-umboðssala ehf | 1.000.000 |
Smjer II | Smjer ehf. | 1.000.000 |
BALI – hestastudd meðferð fyrir erlenda gesti | Þorkatla Elín Sigurðardóttir | 850.000 |
Plöntuostar – markaðssókn | Livefood ehf. | 850.000 |
Frostþurrkað snarl úr íslensku grænmeti | Frostþurrkun ehf. | 700.000 |
Rabbarbarafreyðivín | Þórólfur Sigurðsson | 700.000 |
Íslandsflugur | Íslandsflugur ehf. | 700.000 |
Vik: Love at first bite! Marketing for Arctic Macarons | Vincent Armand Cornet | 500.000 |
Sunnlenskar konur á kortið! | Herdís Friðriksdóttir | 500.000 |
Bókviti | Esther Bergsdóttir | 300.000 |
Samantekið 1. og 4. dagskrárliður er snúa að úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands. Heildarfjöldi umsókna taldi 90 umsóknir. 62 umsóknir bárust í flokki menningarverkefna og 28 umsóknir í flokki atvinnu- og nýsköpunarverkefna. Veittir styrkir samtals kr. 19.500.000,- til 44 menningarverkefna og kr. 13.100.000,- til 14 atvinnu- og nýsköpunarverkefna. Veittir styrkir samtals kr. 32.600.000,- til 58 verkefna.
Öllum umsækjendum eru færðar þakkir fyrir innsendar umsóknir og óskað velfarnaðar með sín verkefni. Styrkþegum er óskað til hamingju með veitta styrki.
Næsti fundur stjórnar verður haldinn á Selfossi 2. desember nk. kl. 12:30.
Fundi slitið kl. 14:15
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
Einar Freyr Elínarson
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
Sandra Sigurðardóttir
Bragi Bjarnason
Grétar Ingi Erlendsson
Arnar Freyr Ólafsson
Árni Eiríksson
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir