fbpx

Í vikunni rann út umsóknarfrestur til að sækja um styrk í Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Alls bárust  sjóðnum 96 umsóknir. Skiptast umsóknirnar í eftirfarandi flokka, menningarverkefni samtals 74 umsóknir og atvinnu- og nýsköpunarverkefni samtals 22 umsóknir.

Allir umsækjendur fá sendan tölvupóst um niðurstöðu fagráðs og stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga 14. nóvember n.k.