Það er von skipuleggjanda að ráðstefnan verði vel sótt og verði til þess að auðga umræðu um búsetu og byggðaþróun. Hvað ræður ákvörðun um búsetu? Hvað gerir samfélag aðlaðandi? Hvað felst í frelsinu? Hverjar eru áskoranirnar og hvar liggja tækifærin? Auk ótal annarra spurninga og sjónarhorna út frá hugtakinu „búsetufrelsi“. Ráðstefnan á erindi við sveitarstjórnarfólk, fulltrúa atvinnulífs, stefnumótendur og alla sem starfa eða sinna rannsóknum á vettvangi byggðamála.
Nánari dagskrá má sjá hér.
Skráning hér
Síðasti dagur skráningar er 26. október.
Ráðstefnugjald er ekkert að þessu sinni en skráning er nauðsynleg, hvort heldur sem þú hyggst mæta á staðinn eða fylgjast með í streymi. Slóðin verður aðgengileg á heimasíðu Byggðastofnunar.
Fréttin birtist fyrst á vef Byggðastofnunar.