Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Byggðarannsóknasjóði. Tilgangur sjóðsins er að efla byggðarannsóknir og veita styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem stuðlað geta að jákvæðri byggðaþróun og bæta þekkingargrunn fyrir stefnumótun, og áætlanagerð og aðgerðir á sviði byggðamála.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 3. mars 2024. Byggðarannsóknasjóður hefur allt að 17,5 m.kr. til úthlutunar. Styrkir verða veittir til eins árs.
Í umsóknum skal koma fram greinargóð lýsing á rannsókn, markmiðum, ávinningi, nýnæmi og hvernig rannsóknin styður við tilgang sjóðsins. Gera þarf grein fyrir tengslum rannsóknar við byggðaþróun og eftir atvikum hvernig rannsókn fellur að áherslum byggðaáætlunar 2022-2036.
Þættir sem að hafa vægi við mat á umsóknum:
- Hvernig verkefnið styður við tilgang sjóðsins og tengist byggðaþróun.
- Vísindalegt og hagnýtt gildi verefnisins.
- Nýnæmi verkefnis.
- Gæði umsónar (skýr markmið, vönduð rannsóknaráætlun og hnitmiðaður texti).
Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnanir eða aðrir lögaðilar. Sjá nánar:
- Rafrænt umsóknarform (Umsóknargátt Byggðastofnunar)
- Reglur Byggðarannsóknarsjóðs
- Starfsreglur stjórnar Byggðarannsóknasjóðs
- Byggðaáætlun 2022-2036
Frekari upplýingar um Byggðaransóknasjóð er að finna á vef Byggðastofnunar.
Einnig veitir nánari upplýsingar Hanna Dóra Björnsdóttir hannadora@byggdastofnun.is / sími 455 5454