- Hvaða þjónustu nota íbúar og hvert fara þeir til að sækja þá þjónustu?
- Hvaða þjónustu þarf helst að bæta við eða efla?
- Hvaða þjónustu óttast íbúar helst að missa úr heimabyggð?
Byggðastofnun stendur fyrir þjónustukönnun meðal íbúa um allt land (utan höfuðborgarsvæðisins) Maskína framkvæmir könnunina fyrir Byggðastofnun. Er könnunin framkvæmd vegna rannsókna á þjónustusókn og væntingum til breytinga á þjónustu.
Áætlað er að það taki um 10 mínútur að svara. Könnunin er á Íslensku, ensku og pólsku.
Smelltu á mynd eða hlekkinn til að taka þátt: Þjónustukönnun
Vakin er athygli á því að rafræn skilríki eru notuð við innskráningu til að tryggja áreiðanleika könnunarinnar en öllum persónulegum upplýsingum er eytt áður en úrvinnsla gagna hefst.
Nánari upplýsingar um þjónustukönnunina má finna á heimasíðu Byggðastofnunar.