fbpx

 

Beint frá býli dagurinn var haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn í fyrra, á sex lögbýlum hringinn í kringum landið, einu í hverjum landshluta.

Tilefnið var 15 ára afmæli félagsins, en tilgangurinn að kynna íbúum starfsemi heimavinnsluaðila á lögbýlum og byggja upp tengsl milli þeirra.

Á býli gestgjafanna söfnuðust saman aðrir framleiðendur af lögbýlum úr landshlutanum til að kynna og selja sínar vörur. Ýmis afþreying var í boði til viðbótar við það sem býlin sjálf höfðu upp á að bjóða og var dagurinn sérlega barnvænn.

Afar góð mæting var í öllum landshlutum og almennt mikil ánægja. Skipuleggjendur áætla að 3-4000 manns hafi lagt leið sína á bæina samanlagt. Því var ákveðið að gera daginn að árlegum viðburði.

Fleiri smáframleiðendur með í ár

Beint frá býli dagurinn verður aftur haldinn síðasta helgidag fyrir skólabyrjun sem í ár er sunnudagurinn 18. ágúst.

Öllum þeim ríflega 200 framleiðendum sem eru í Samtökum smáframleiðenda matvæla sem Beint frá býli er aðildarfélag að, verður boðið að taka þátt, en ríflega helmingur þeirra er á lögbýlum.

Gestgjöfunum hefur verið fjölgað úr sex í sjö á landinu öllu. Í ár verða tveir viðburðir á Suðurlandi. Annar svegar Háhóll geitabú á Hornafirði og hins vegar Hreppamjólk í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

SASS hvetur Sunnlendinga til að fjölmenna á viðburðina, nánari upplýsingar má finna með því að smella á hlekkina hér að ofan. 
Einnig má finna nánari upplýsingar á vef Beint frá býli: https://www.beintfrabyli.is.