fbpx

Í tilefni þess að 30 ár eru síðan að samningur um Evrópska efnahagssvæðisins (EES) tók gildi, og veitti Íslandi aðgang að auknum tækifærum til samstarfs í Evrópu, mun Evrópurútan fara hringinn um landið í september þar sem vakin verður athygli á árangri af Evrópuverkefnum í heimabyggð og tækifærum til framtíðar í alþjóðasamstarfi.

Evrópurútan mun mæta á þrjá staði á Suðurlandi á næstu vikum og bjóða íbúum til fundar og samtals um tækfæri í heimabyggð til alþjóðasamstarfs í gegnum fjölmargar samstarfsáætlanir Evrópusambandins.

  • Höfn 19. september í Nýheimum klukkan 15:00-17:00
  • Vík í Mýrdal 20. september í Kötlusetri klukkan 13:00-14:30 
  • Selfoss 26. september, klukkan 14:00-16:00, staðsetning auglýst síðar

 

Evrópurútan er skipulögð af Rannís sem hefur umsjón með öllum helstu samstarfsáætlunum á sviði menntunar, menningar, vísinda og fyrirtækjasamstarfs og mun á hringferð sinni um landið veita upplýsingar um:

  • Erasmus+
  • Horizon Europe
  • Creative Europe
  • European Solidary Corps
  • Enterprise Europe Network
  • Digital Europe
  • LIFE
  • Nordplus

Við hvetjum öll til að mæta of kynna sér tækifæri til alþjóðasamstarfs til framtíðar fyrir sína heimabyggð.

 
Óskað er eftir skráningu á viðburðina fyrir áætlun veitinga á hverjum stað fyrir sig. Hlekkur á skráningu: https://forms.office.com/e/mAgTA5tQkH
 
Nánar má lesa um viðburðaröðina á: https://www.rannis.is/vidburdir/evropusamvinna/evropurutan/