Sóknaráætlunarsamningar við átta landshlutasamtök sveitarfélaga til fimm ára voru undirritaðir í gær. Eyjólfur Ármannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Logi Einarsson, menningar, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og fulltrúar landhlutasamtakanna undirrituðu samningana í Norræna húsinu. Það er samdóma álit þeirra sem koma að sóknaráætlunum að þær hafi sannað gildi sitt fyrir byggðir landsins en verkefnið byggir á tólf ára sögu.
Framlög ríkisins til samninganna árið 2025 nema samtals 865,7 milljónum króna og framlög sveitarfélaga samtals 93,9 milljónum króna. All nema heildarframlög ríkis og sveitarfélaga til sóknaráætlana því um 960 milljónum kr.
Sóknaráætlanir landshluta eru stefnumótandi áætlanir sem fela í sér stöðumat viðkomandi landshluta, framtíðarsýn, markmið og aðgerðir til að ná þeim markmiðum. Markmiðið er að ráðstöfun fjármuna sem varið er til verkefna í einstökum landshlutum á sviði samfélags-, umhverfis- og byggðamála byggi á áherslum heimafólks.
Nánari frétt af undirrituninni er að finna á vef stjórnarráðsins hér.