Kveiktu á perunni á Hugmyndadögum byggðaþróunarfulltrúa á Suðurlandi!
Ertu með brennandi áhuga á hringrásarahagkerfinu, sjálfbærni og nýsköpun? Viltu taka þátt í spennandi hugmyndavinnu og þróa lausnir fyrir fyrirtæki og sveitarfélög á Suðurlandi? Þá eru Hugmyndadagar á Suðurlandi í boði byggðaþróunarfulltrúa SASS og Lóu nýsköpunarsjóðs akkúrat það sem þú ert að leita að!
Hvað er í boði?
- Fjölbreytt dagskrá:
- 1. hluti – Rafræn vinnustofa í hönnunarhugsun og nýsköpun (1. apríl, 13:00-15:00)
Svava Björk Ólafsdóttir, sérfræðingur í nýsköpun leiðir vinnustofuna og Guðrún Gyða Franklin, arkitekt og sérfræðingur í hönnunarhugsun færir þátttakendum hugræna verkfærakistu hönnunarhugsunar. - 2. hluti – Hugarflug um nýjar hringrásar lausnir inni á hverju svæði með þátttöku fyrirtækja og sveitarfélaga (3. apríl, 10:00-16:00)
Teymin hittast á sínu nærsvæði þar sem fulltrúar RATA og byggðaþróunarfulltrúar leiða hugmyndavinnu með hönnunartóli hringrásarhagkerfisins. - 3. hluti – Rafrænn lokaviðburður (7. apríl 13:00-15:00)
Teymin kynna verkefni sín fyrir dómnefnd.
- 1. hluti – Rafræn vinnustofa í hönnunarhugsun og nýsköpun (1. apríl, 13:00-15:00)
- Áhersla á hringrásarhagkerfið: Við beinum sjónum að hringrásarlausnum og nýsköpun innan fyrirtækja og sveitarfélaga.
- Teymisvinna: Myndaðu 2-4 manna teymi með vinum, samstarfsfólki eða nýjum samstarfaðilum.
- Fyrir öll: Hvort sem þú ert fulltrúi fyrirtækis, sveitarfélags eða einstaklingur.
- Vegleg verðlaun: Verðlaunapottur hljóðar upp á 400.000 krónur
Hvernig virkar þetta?
- Þú færð þjálfun í hönnunarhugsun og nýsköpunarferlinu
- Þú vinnur í teymi að raunverulegum áskorunum frá fyrirtækjum og sveitarfélögum.
- Þú færð leiðsögn frá sérfræðingum og tækifæri til að kynna hugmyndina þína.
- Hugmyndadagar standa yfir frá 1. apríl til 7. apríl (þetta er ekki aprílgabb)
Hverjir geta tekið þátt?
- Öll áhugasöm um nýsköpun, sjálfbærni og hringrásarhagkerfið
- Fyrirtæki og einstaklingar á Suðurlandi.
- Engin sérstök forkunnátta er nauðsynleg.
Ekki missa af þessu frábæra tækifæri til að láta ljós þitt skína!