Ríksstjórnin hélt fund á Hótel Selfossi sl. föstudag. Í kjölfar ríkisstjórnarfundarins hélt ríkisstjórnin fund með fulltrúum allra sveitarstjórnarmanna á Suðurlandi þar sem rætt var um málefni þeirra. Að loknum þeim fundi var skrifað undir ýmsa samninga sem varðar verkefni sem eru framundan á Suðurlandi.
Föstudaginn 25. janúar var skrifað undir samning mennta- og menningarmálaráðuneytisins við sveitarfélagið Hornafjörð og Samband sunnlenskra sveitarfélaga um verkefni á sviði menntunar, rannsókna og nýsköpunar.
Verkefnið er fjármagnað með 15 m.kr. framlagi af sameiginlegu ráðstöfunarfé ríkisstjórnar Íslands. Það byggir á tillögum starfshóps á vegum mennta- og menningarmálaráðherra og eru meginmarkmið þess þríþætt:
- að komið verði á fót sjálfseignarstofnun um samstarf og hugmyndafræði Nýheima undir heitinu Þekkingarsetur Nýheima.
- að unnið verði að samþættingu fræðslu og menntunar á Suðurlandi, einkum símenntunar, framhaldsfræðslu og aðgengi að námi á háskólastigi.
- að efldar verði skapandi greinar í sveitarfélaginu Hornafirði m.a. með uppbyggingu Vöruhússins á Höfn Hornafirði.
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Hjalti Þór Vignisson sveitarstjóri Hornarfjarðar og Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri Sambands sunnlenskra sveitarfélaga undirrituðu samninginn.
∞
Verknámshúss Fjölbrautaskóla Suðurlands
Í dag var jafnframt undirritaður samningur um hönnunarsamkeppni vegna stækkunar á verknámsaðstöðu Fjölbrautaskóla Suðurlands. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir verði boðnar út í september á þessu ári en áætlaður kostnaður er 650 m.kr.
Um er að ræða 1.630 m2 viðbyggingu við núverandi verknámsaðstöðu skólans sem er 1.230 m2 og því um að ræða meira en tvöföldun á núverandi húsnæði. Áætlaður kostnaður er um 650 m.kr. sem skiptist þannig að ríkissjóður greiðir 60% en sveitarfélög á svæðinu 40%.
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Katrín Júlíusdóttir efnahags- og fjármálaráðherra skrifuðu undir samninginn fyrir hönd ríkisins. Ásta Stefánsdóttir sveitastjóri skrifaði undir fyrir hönd Árborgar, Valtýr Valtýrsson oddviti fyrir hönd Héraðsnefndar Árnesinga og Ísólfur Gylfi Pálmason sveitastjóri fyrir hönd Héraðsnefndar Rangæinga og Héraðsnefndar Vestur Skaftfellinga.
∞
Endurbætur á eldri hluta sjúkrahússins á Selfossi
Með umfangsmiklum breytingum á eldri hluta sjúkrahússins verður húsakostur færður til nútímalegs horfs sem auðveldar rekstur stofnunarinnar og bætir til muna aðstæður skjólastæðinga hennar og starfsfólks. Eftir breytingar verður húsakostur um 5.800 m2 en eldri hlutinn er nú um 3.000 m2. Gert er ráð fyrir að hefjast handa við fyrsta hluta framkvæmdanna á þessu ári, en heildarkostnaður er áætlaður um 1.360 m. kr.
∞
Endurnýjun þjónustusamnings við sveitarfélagið Hornafjörð
Sveitarfélagið hefur á grunni þjónustusamnings við ríkið sinnt heilbrigðis- og öldrunarþjónustu. Sveitarfélagið hefur samþætt heilbrigðis- og öldurnarþjónutu við önnur svið velferðar- og félagsmála sem það veitir. Reynslan af þessu fyrirkomulagi er mjög góð og hefur styrkt þjónustu við íbúa í byggðarlaginu.
Þjónustusamningurinn hefur ekki verið endurnýjaður frá árinu 2006. Í dag undirrituðu Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri á Höfn þjónustusamning sem þar með hefur verið endurnýjaður.
∞
Þekkingarsetur á Kirkjubæjarklaustri
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, undirritaði í dag samning við Framkvæmdasýslu ríkisins um byggingu þekkingarseturs á Kirkjubæjarklaustri.
Þekkingarsetur á Kirkjubæjarklaustri er fyrsta framkvæmdin af þessari stærðargráðu sem ráðuneytið stendur fyrir á kjörtímabilinu. Gert er ráð fyrir 290 m. kr. framlagi til byggingarinnar næstu þrjú árin, eða samtals 870 milljónum króna.
Þekkingarsetrið mun hýsa gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs, sem er önnur gestastofan af þeim fjórum sem fyrirhugað er að byggja fyrir þjóðgarðinn. Gestastofurnar gegna mikilvægu hlutverki fyrir gesti þjóðgarðsins og veita ferðamönnum upplýsingar. Þá er gert ráð fyrir að í þekkingarsetrinu verði einnig til húsa skrifstofa Skaftárhrepps og Erró-setur auk starfsemi á vegum Háskóla Íslands.
Kirkjubæjarklaustur er á svonefndu köldu svæði og hefur í því ljósi verið ákveðið að þekkingarsetrið vinni að frumkvöðlaverkefni á sviði orkunotkunar og umhverfismála á slíkum svæðum. Ætlunin er að teymi sérfræðinga leiti lausna til að draga úr orkukostnaði og umhverfisáhrifum byggingarinnar með ólíkum aðferðum. Með ráðuneytinu og Vatnajökulsþjóðgarði starfa nú þegar Framkvæmdasýsla ríkisins, Arkís arkitektar, Orkusetur, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Varmalausnir ehf.
∞
Ný Vestmannaeyjaferja
Ríkistjórnin áréttaði á fundinum á Selfossi í dag að haldið yrði áfram undirbúningi vegna útboðs og smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju og að fengnum jákvæðum niðurstöðum undirbúningsins yrði ráðist í næsta áfanga sem er að bjóða út hönnun og síðan bjóða smíði hennar út. Samkvæmt áætlunum yrði ný Vestmannaeyjaferja tekin í notkun árið 2015.
Unnið hefur verið að þessu verkefni undir forræði innanríkisráðuneytisins samkvæmt samgönguáætlun og framkvæmdaáætlun. Gert er ráð fyrir að fyrsta áfanga, þarfagreiningu og kröfulýsingu fyrir nýja ferju ljúki í byrjun næsta mánaðar.
Gert er ráð fyrir að lögð verði til smíði á um 60 fólksbíla ferju, rúmlega 60 m langri og 15 m breiðri og með djúpristu 2,8 m en Herjólfur ristir 4,3 m. Gert er ráð fyrir svokallaðri tvinn (hybrid) tækni. Miðað er við siglingar í Landeyjahöfn allt árið með ásættanlegum frátöfum yfir háveturinn.
Með því að hætt verður siglingum til Þorlákshafnar og með hybrid tækninni mun sparast umtalsverður olíukostnaður. Með nýrri tækni og skipulagi má mögulega lækka árlegan rekstrarkostnað um 230 m. kr. miðað við núverandi stöðu. Ekki hefur hér verið tekið tillit til annarra veigamikilla og jákvæðra atriða svo sem aukins öryggis, bættrar þjónustu, minni mengunar og framtíðarmöguleikum á að nýta landrafmagn. Þá er eftir að taka tillit til sparnaðar við dýpkun en með nýrri grunnristari ferju lækkar dýpkunarþörfin frá 300-500 þúsund rúmmetrum niður í 150-200 þúsund rúmmetra á ári. Það gefur árlegan sparnað upp á um 150 m.kr. til viðbótar þeim 230 m. kr. sem framan er talið.