ÍSLENSKI BÆRINN/TURF HOUSE
Kynning – Upplegg – Framtíðarsýn
Þriðjudagur 28. janúar 2014 í “stóru” stofunni í Fjölheimum, Selfossi. kl. 14:00 – 16:30
Til fundarins eru boðaðir m. a. fulltrúar SASS, Markaðsstofu Suðurlands, Sveitarstjórnar Flóahrepps, Menningarráðs Suðurlands, Háskólafélags Suðurlands o. fl.
Á fundinum munu fulltrúar og samstarfsaðilar Íslenska bæjarins kynna þróunar- og vaxtarmöguleika hans.
– Hvað er Íslenski bærinn/Turf House?
Hannes Lárusson myndlistarmaður og forstöðumaður ÍB/TH
– Bláa lónið, Þingvellir, Íslenski bærinn, Skógar. Hvernig á að koma stórum ferðamannstað á kortið á Suðurlandi?
Jóhann Bjarni Kolbeinsson, fréttamaður sem vann viðskiptaáætlun um ÍB/TH í MA-námi við háskólann í Uppsala.
Gísli Jóhann Eysteinsson og Hjalti Harðarson, framkvæmdastjórar Kjarnans og markaðsfræðingar.
– Alþjóðleg sumarvinnnustofa í vistvænni byggingarlist. Verðmætasköpun og margfeldisáhrif.
Hvaða grundvöllur er fyrir tveimur til þremur 15 eininga háskólanámskeiðum með þáttöku 30-40 erlendra nemenda á Suðurlandi?
Sigurjón B. Hafsteinsson, mannfræðingur og dósent í safnafræði við HÍ
Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt og aðjúnkt við LHÍ
Sigurður Sigursveinsson forstöðumaður Háskólafélags Suðurlands
-Þjóðlegt, fallegt og fjöldaframleitt. Hvernig er hægt að margfalda ánægju, upplifun og virðisauka með framleiðslu á einföldu og ódýru matarlistaspjaldi?
Hjörtur Skúli Jóhannsson vöruhönnuður
Hannes Lárusson forstöðumaður ÍB/TH
Kristín Magnúsdóttir lífefnafræðingur og meðeigandi ÍB/TH
-Exklúsívur staður á Suðurlandi. Atburðir, samkomur, hátíðir.
Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Hannes Lárusson o. fl.
Öll innlegg verða stutt og hnitmiðuð.
Umræður, hugmyndir, kaffi og með því.
Til fundarins boða Íslenski bærinn í samráði við SASS