Nú í vikunni fer ný glæsileg heimasíða í loftið á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga með léninu www.sudurland.is
Síðan er hugsuð fyrir okkur heimafólkið á Suðurlandi, þar sem við getum nálgast víðtækar upplýsingar um landshlutann okkar og að sjálfsögðu er hún líka fyrir aðra landsmenn. Þannig verður hún sameiginlegt andlit landshlutans út á við og inn á við.
Með upplýsingasíðunni á að vera auðveldara fyrir notandann að finna hvaða afþreying og viðburðir eru í boði á Suðurlandi, hvar eru bókasöfn, sundlaugar, önnur söfn, hvar er hægt að borða og gista? Einnig er að finna upplýsingar um styrki og ráðgjöf sem er í boði í fyrir atvinnu- og menningarlíf á Suðurlandi.
Verkefnið er hluti af Sóknaráætlun Suðurlands sem m.a. felst í því að markaðssetja Suðurland sem góðan kost í staðsetningu fyrirtækja og stofnana, og kynna fólki Suðurland sem góðan búsetukost jafnframt því að koma á framfæri öflugu menningarlífi á á Suðurlandi bæði fyrir íbúa og gesti.