Alls sóttu 38 manns um starf sveitarstjóra Flóahrepps en umsóknarfrestur um stöðuna rann út 29. júní. Nýr sveitarstjóri mun taka við starfinu 1. ágúst nk., af Margréti Sigurðardóttur. Sveitarfélagið er 290 km² að stærð og búa 640 manns í því. Eftirtaldir aðilar sóttu um stöðuna:
Aðalsteinn J. Halldórsson, stjórnsýslufræðingur.
Ásgeir Einarsson, stjórnmálafræðingu
Bárður Steinn Róbertsson, lögfræðingur
Björn Rúriksson, viðskiptafræðingur
Drífa Jóna Sigfúsdóttir, viðskiptafræðingur
Drífa Kristjánsdóttir, fv. oddviti
Einar Kristján Jónsson, verkefnastjóri
Eirný Vals, fv. bæjarstjóri
Eydis Þ. Indriðadóttir, fv.oddviti og sveitarstjóri
Guðbjörg Jónsdóttir, fyrrverandi bóndi
Guðlaug Ósk Svansdóttir, framkvæmdastjóri
Guðmundur Ágúst Ingvarsson, framkvæmdastjóri
Gunnar Freyr Róbertsson, markaðsstjóri
Gunnar Kristinn Þórðarson, stuðningsfulltrúi
Hallgrímur Ólafsson, viðskiptafræðingur
Haraldur A. Haraldsson, sölustjóri
Haukur Ísbjörn Jóhannsson, tónlistarmaður
Hrafnkell Guðnason, verkefnastjóri
Inga Ósk Jónsdóttir, viðskiptafræðingur
Ingimundur Einar Grétarsson, stjórnsýslufræðingur
Jens Pétur Jensen, sveitarstjóri
Jóhanna Aradóttir, tómstunda- og félagsfræðingur
Jón Pálmi Pálsson, rekstrarfræðingur
Jónas Pétur Hreinsson, iðnrekstrarfræðingur
Jónína Kristjánsdóttir, viðskiptafræðingur
Kristinn Dagur Gissurarson, viðskiptafræðingur
Lárus Páll Pálsson, viðskiptafræðingur
Magnús Jónasson, byggingafræðingur
Ólöf Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri
Óskar Már Ásmundsson, forstöðumaður
Páll Línberg Sigurðsson, rekstrarstjóri
Ragnar Hannes Guðmundsson, viðskiptafræðingur
Ragnheiður Hergeirsdóttir, forstöðumaður
Rósamunda Jóna Baldursdóttir, lögfræðingur
Steingerður Hreinsdóttir, rekstrarstjóri
Sverrir Sigurjónsson, háskólanemi
Þorbjörn Tjörvi Stefánsson, rekstrarhagfræðingur
Örn Karlsson, vélaverkfræðingur