Í dag fimmtudaginn 19. mars, kl. 10-16 stendur yfir Starfamessa á Suðurlandi 2015 í Fjölbrautaskóla Suðurlands í samstarfi SASS, Atorku, framhaldsskóla og grunnskóla á Suðurlandi. Þar kynna sunnlensk fyrirtæki starfsemi sína og störf í fyrirtækinu fyrir unga fólkinu á Suðurlandi, með sérstakri áherslu á iðn- og tæknigreinar, garðyrkju og ferðaþjónustu. Iðandi starfatorg verður í anddyri og sal Fjölbrautaskólans, opið gestum og gangandi. Lögð verður áhersla á lifandi kynningar og geta gestir fylgst með fólki að störfum.