Markmið
Markmiðið er að stilla upp ólíkum valkostum tengt rekstri sjúkraþyrlu þannig að hægt sé að taka afstöðu til þess hvort skynsamlegt sé að hefja rekstur á sjúkraþyrlu á Suðurlandi sem tilraunaverkefnis.
Verkefnislýsing
Tekin verða saman þau gögn sem þegar hafa verið unnin og þau uppfærð. Fyrri niðurstöður benda ótvírætt til að sjúkraþyrlur þurfa að vera liður í framtíðarstefnu í sjúkraflutningum og það úrræði þarf með einum eða öðrum hætti að vera unnið í samvinnu við þá starfsemi sem þegar býðst til sjúkraflutninga. Fyrri athuganir benda til að Suðurlandið sé það landsvæði sem hentar best til tilrauna á þessu sviði en álíka tilraun hefur m.a. verið gerð í Danmörku og þar var niðurstaðan sú að halda áfram með verkefnið.
- Fyrsti hluti verkefnisins er að uppfæra tölfræði tengda sjúkraflutningum og spá fyrir um þróunina.
- Annar hluti þess er að stilla upp ólíkum valkostum varðandi mönnum þyrlunnar til að hægt sé að þjóna þeim sem er í nauð.
- Þriðji verkhlutinn tengist rekstri þyrlunnar og mönnunar en þar verður ólíkum valkostum stillt upp.
Tengsl við sóknaráætlun 2020-2024
Verkefnið tengist megináherslunni Samfélag þar sem meðal annars er lögð áhersla á bætta velferða og samstarf svo lífsgæði eflist á Suðurlandi.
Væntur árangur
Að tilraunaverkefni hefjist með rekstur á sjúkraþyrlu á Suðurlandi.
Lokaafurð
Niðurstaða verkefnisins er lista upp ólíkum valkostum þannig að hægt sé að taka afstöðu til þess hvort hefja eigi rekstur sjúkraþyrlu í tilraunaskyni.
Verkefnastjóri
Ingvi Már Guðnason
Framkvæmdaraðili
SASS
Samstarfsaðilar
Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu)
Heildarkostnaður
5.000.000 kr.
Þar af framlag úr Sóknaráætlun
3.000.000 kr.
Ár
2024
Upphaf og lok verkefnis
Janúar – desember 2024
Staða
Í vinnslu
Númer
243006