fbpx
11. desember 2014

Bæjarskrifstofur Hveragerðisbæjar sigruðu í vinnustaðakeppni 3 – 9 starfsmenn í landsleiknum, Allir Lesa 2014. 6 starfsmenn bæjarins voru í liðinu og var meðalfjöldi lesinna mínútna á mann 2 klst, 21 mínúta og 16 sekúndur. Landsleikurinn ALLIR LESA fór fram í fyrsta sinn 17. október til 16. nóvember 2014 og lauk honum á degi íslenskrar tungu.