Um sl. áramót færðist umsjón ART verkefnisins yfir til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í kjölfar þess að starfsemi Skólaskrifstofu Suðurlands var hætt. ART verkefnið hefur frá upphafi verið rekið á ábyrgð SASS en Skólaskrifstofunni var falin umsjón þess. Engar breytingar verða á starfseminni en hjá ART teyminu starfa þrír sérfræðingar þau Bjarni Bjarnason forstöðumaður og ráðgjafarnir Sigríður Þorsteinsdóttir og Kolbrún Sigþórsdóttir
ART er vel afmörkuð og árangursrík aðferð sem byggir á félagsfærni, sjálfstjórn og siðferði og miðar að því að draga úr erfiðri hegðun hjá börnum og ungu fólki, t.d. þeim sem greinst hafa með ýmis konar þroskaraskanir, ofvirkni og alvarlegar atferlistruflanir. ART hjálpar öllum að eiga árangursrík samskipti og þekkja tilfinningar sínar.
Rannsóknir sýna að með því að vinna markvisst og samhliða með félagsfærni, sjálfstjórnun og siðferðisþroska er hægt að hjálpa börnum og fullorðnum að bæta samskipti.
Í félagsfærniþjálfuninni er nemendum kennd jákvæð samskipti í daglega lífinu. Unnið er kerfisbundið með tiltekin atriði. Þetta er gert með sýnikennslu, hlutverkaleikjum og ýmis konar verkefnum.
Í sjálfstjórnun læra nemendur að bregðast við árekstrum með því að þekkja: – hvað kveikir reiði þeirra, – hvað gerist innra með þeim þegar þau reiðast, – hvernig þau eru vön að bregðast við og – hvaða afleiðingar það hefur. Þeim er kennt að rjúfa ferlið með ýmsum aðferðum og innleiða nýjar samskiptaleiðir (félagslega færni).
Siðferðisþátturinn leggur áherslu á að nemendur rökræði undir stjórn þjálfara út frá sögum (klípusögum) þar sem fyrir koma siðferðisleg álitamál. Þetta eru annars vegar sögur sem tilheyra námsefninu og hins vegar sögur úr reynsluheimi barnanna sjálfra.
Sjálfstjórn, félagsfærni og siðferðisvitund eru öllum börnum mikilvæg til að geta átt góð samskipti og eignast vini.
Nánari upplýsingar um ART má finna á heimasíðu ART teymisins á Suðurlandi – www.isart.is