Átak til atvinnusköpunar er styrkáætlun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins fyrir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með umsóknarferlinu fyrir hönd atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Umsóknafrestur er til kl. 12 á hádegi þann 26. september. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar má nálgast hér
Markmið verkefnisins
- Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta
- Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða frumkvöðla og fyrirtækja
Sérstök áhersla er lögð á
- Verkefni sem eru nýjung og skapa ný störf
- Nýsköpun og/eða samstarfsverkefni sem byggir á hönnun
- Nýsköpun sem á sér stað í klasasamstarfi