Orkídea leitar að öflugum einstaklingi, sem er til í gott hugarflug og með auga fyrir nýjum hugmyndum og lausnum, í starf verkefnastjóra í uppbyggingu Grænna iðngarða á Suðurlandi, í anda hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins og nýsköpunar. Grænn iðngarður er samstarfsnet fyrirtækja á ákveðnu atvinnusvæði þar sem skipst er á orku og hráefnum þar sem úrgangur og straumar
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur styrkt Samtök sunnlenskra sveitarfélaga vegna tveggja verkefna. Annars vegar viðskiptahraðalsins Sóknarfæri í nýsköpun og hins vegar Úrgangsgagnatorgs. Markmið verkefnisins Sóknarfæri í nýsköpun er að auka hvata til nýsköpunar á Suðurlandi, með sérstakri áherslu á hringrásarhagkerfið. Jafnframt því að kynna stoðkerfi nýsköpunar á Suðurlandi og hrinda af stað fjölbreyttum nýsköpunarverkefnum á
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurlands, um er að ræða vorúthlutun 2023. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar, og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileika atvinnulífs. Í flokki menningar
Tónlistarskóli Árnesinga hlaut Menntaverðlaun Suðurlands fyrir árið 2022 en Forseti Íslands afhenti verðlaunin. Um 550 nemendur eru í skólanum en kennslan fer fram á 14 stöðum í Árnessýslu. Átta sveitarfélög sýslunnar standa að skólanum. Menntaverðlaun Suðurlands fyrir árið 2022 voru afhent 12. janúar sl. á sérstakri hátíðarathöfn í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi en verðlaunin eru
Svæðisskipulagsnefnd Suðurhálendis vinnur nú að gerð svæðisskipulags fyrir Suðurhálendið sem nær til hálendishluta eftirtalinna sveitarfélaga: Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Ásahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppur. Auk þeirra taka sveitarfélögin Flóahreppur og Árborg þátt í verkefninu. Í samræmi við 23. gr. skipulagslaga og 13. og 14. gr. laga um umhverfismat
Þann 23. janúar nk. hefjast Sóknarfæri í nýsköpun sem er átta vikna sunnlenskur viðskiptahraðall þar sem áhersla er lögð á verkefni sem tengjast orku, mat og líftækni, ferðaþjónustu og skapandi greinum. Auglýst var eftir þátttakendum í desember og voru á endanum valin níu teymi til þátttöku. Þau eru eftirtalin: Auður allt árið – Umhverfis-
Auglýst starf tengist samstarfsverkefni SASS og sveitarfélaganna Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps, Skaftárhrepps og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um íbúaþróun svæðisins með sérstakri áherslu á nýja íbúa. Verkefnið hefur tvívegis fengið styrk úr Byggðaáætlun. Nú þegar hefur verið unnin tölfræðileg greining á lýðfræðilegri þróun á svæðinu og framkvæmd eigindleg og megindleg rannsókn meðal erlendra íbúa svæðisins. Niðurstöður úr þeirri
Innviðaráðherra auglýsir eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna verkefna sem tengjast aðgerð C.1 Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða. Landshlutasamtök sveitarfélaga geta í samstarfi við haghafa í hverjum landshluta sótt um framlög í samkeppnissjóð vegna verkefna sem nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans eða landshlutanum í heild. Sérstök áhersla
Sóknarfæri í nýsköpun er átta vikna sunnlenskur viðskiptahraðall þar sem áhersla er lögð á verkefni sem tengjast orku, mat og líftækni, ferðaþjónustu og skapandi greinum. Þar fá þátttakendur tækifæri til þess að efla sig og sínar hugmyndir undir handleiðslu reyndra þjálfara og mentora. Sóknarfæri er byggt upp að fyrirmynd viðskiptahraðals sem er sérhannaður með þarfir
SASS óskar eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2022. Allir þeir sem tengjast skóla- og/eða menntunarstarfi með einhverjum hætti, s.s. sveitarfélög, skólanefndir, kennarar, starfsfólk skóla og annað áhugafólk um menntun og skólastarf, hafa rétt til þess að tilnefna til verðlaunanna. Tilnefningunni verður að fylgja ítarlegur rökstuðningur. Allir þeir sem koma að skóla- eða menntunarstarfi með einhverjum