fbpx

Fréttir

9. mars 2022

Ráðstefnan Maturinn jörðin og við verður haldin 7. og 8. apríl nk. á Hótel Selfoss. Er hún haldin af félaginu Auður Norðursins í samstarfi við Byggðastofnun og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga. Markmið ráðstefnunnar er að hvetja til upplýstrar umræðu um áskoranir í matvælframleiðslu með hliðsjón af loftslagsmálum, heilsusjónarmiðum og fleiri áhrifaþáttum á neyslu og lífstíl fólks.

4. mars 2022

Í vikunni rann út umsóknarfrestur til að sækja um styrk í Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Alls bárust  sjóðnum 90 umsóknir. Skiptast umsóknirnar í eftirfarandi flokka, menningarverkefni samtals 59 umsóknir og atvinnu- og nýsköpunarverkefni samtals 31 umsóknir. Allir umsækjendur fá sendan tölvupóst um niðurstöðu fagráðs og stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga eigi síðar en 5. apríl nk.    

2. mars 2022

Ert þú í rekstri fyrirtækis? Þá býðst þér að taka þátt í fyrirtækjakönnun landshlutanna. Hún er fyrir alla aðila í rekstri, hvort sem um ræðir stór, miðlungs eða lítil fyrirtæki, eða einyrkja. Með könnuninni hafa landshlutasamtök, Byggðastofnun og aðrir sem vinna að byggðaþróun reynt að gera sér grein fyrir stöðu atvinnulífsins vítt og breitt um

28. febrúar 2022

Landstólpinn samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar er viðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega á ársfundi sínum. Um er að ræða hvatningarverðalun til einstaklinga, fyrirtækja, hópa eða verkefna sem vakið hafa athygli á byggðamálum, styrkt samfélög í landsbyggðunum eða stuðlað að framgangi málefna landsbyggðanna, ýmist í heild eða innan tiltekins byggðarlags, s.s. innan nýsköpunar, byggðaþróunar, atvinnuþróunar, sjálfbærni eða menningar.  

18. febrúar 2022

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óska eftir að ráða einstakling í starf bókara/launafulltrúa hjá samtökunum. Viðkomandi mun annast færslu á bókhaldi og launaútreikningum. Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og kynningarbréf.

2. febrúar 2022

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurlands, um er að ræða vorúthlutun 2022. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar, og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileika atvinnulífs. Í flokki menningar

1. febrúar 2022

Markmið með starfi NORA (Norræna Atlantssamstarfsins) er að styrkja samstarf á Norður-Atlantshafssvæðinu. Ein leið að því markmiði er að veita verkefnastyrki tvisvar á ári til samstarfsverkefna á milli Íslands og a.m.k. eins annars NORA-lands, þ.e. Grænlands, Færeyja og/eða strandhéraða Noregs. Nú er komið að fyrri úthlutun ársins 2022. Í ár skulu umsóknir taka mið af

28. janúar 2022

Nýsköpunarsjóður námsmanna er fyrir háskólanema í grunn- og meistaranámi. Þá geta umsjónarmenn innan háskóla, rannsóknarstofnana og fyrirtækja sótt í sjóðinn án þess að hafa fundið nema. Þeir sem geta sótt um eru háskólanemar í grunn- og meistaranámi, en þar er greiddur er styrkur að hámarki 340.000 kr. á mánuði fyrir hvern nema. Þá geta sérfræðingar

27. janúar 2022

Ratsjáin var fyrst keyrð í samstarfi Ferðaklasans og Nýsköpunarmiðstöðvar árið 2016 en með stuðningi frá Byggðaáætlun 2019. Í verkefninu geta þátttakendur kynnst hver öðrum, geta miðlað þekkingu og reynslu sín á milli og myndað með sér samstarf og tenglsanet. Ratsjáin er ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka nýsköpunarhæfni sína,

26. janúar 2022

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um framlög sem veitt eru til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða, sbr. aðgerð C.1 í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Verður sérstök áhersla lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf, og verða verkefni sem hafa jákvæð áhrif á þróun byggðar og búsetu sett í forgang. Landshlutasamtök sveitarfélaga