fbpx

Fréttir

22. júní 2021

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið leitar að sérfræðingi til að starfa hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Sérfræðingurinn mun m.a. vinna að útreikningi framlaga sjóðsins, greiningum, upplýsingaöflun og framsetningu tölfræðiupplýsinga. Leitað er að sjálfstæðum og jákvæðum einstakling með menntun á sviði viðskipta, hagfræði eða sambærilegt. Starfið er án staðsetningar. Nánari upplýsingar hér.

22. júní 2021

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið leitar eftir framsýnum einstaklingi sem hefur áhuga og innsýn í nýsköpun í opinberri stjórnsýslu. Um er að ræða tímabundna stöðu verkefnastjóra á sviði sveitarstjórnarmála. Viðkomandi þarf að hafa yfirsýn yfir málefni sveitarfélaga og vera sjálfstæður í störfum. Ráðið verður í starfið tímabundið til ársloka 2022 og starfið er án staðsetningar. Nánari upplýsingar

7. júní 2021

Vitaleiðin er ný ferðaleið niður við suðurströndina. Hún nær frá Selvogi í Ölfusi að Knarrarósvita í Árborg og er leiðin tæplega 50 km löng, eftir því hvort ekið er eftir vegi eða strandlínan sé nýtt. Vitaleiðin hjálpar til að laða gesti að svæðinu og leiða þá í gegnum þorpin þrjú við sjávarsíðuna, Þorlákshöfn, Eyrarbakka og

1. júní 2021

Matvælasjóður hefur opnað fyrir umsóknir. Hlutverk sjóðsins er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er að styrkja verkefni sem stuðla að nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskra matvæla um land allt. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum.

31. maí 2021

  Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir kynnti þann 31. maí 29 verkefni sem fá úthlutun úr Lóu-nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina. Hlutverk styrkjanna er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra. Verkefni í öllum landshlutum hljóta styrk og nema hæstu styrkir 10 milljónum króna. Verkefnin

31. maí 2021

Þann 8. júní kl. 11:00 mun fyrirtækið Fortinet halda fræðslufund um netöryggi sveitarfélaga. Fortinet er leiðandi í netöryggis lausnum og er það fyrirtæki sem selur mest og vex hraðast á þessum markaði á heimsvísu. Frederic Nilson kerfisverkfræðingur hjá Fortinet mun kynna Fortinet Municipality Design sem hjálpar sveitarfélögum að auka öryggi sitt á einfaldan hátt. Fundurinn verður

20. maí 2021

Orkídea samstarfsverkefni ásamt eigendum, SASS, Landsvirkjun og LbhÍ, efna til málþings á netinu um græna iðngarða (Eco-Industrial Parks) þann 21. maí nk. kl 8.30-10. Iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir mun ávarpa málþingið og margir aðrir góðir fyrirlesarar halda erindi m.a. Shirar O‘Connor, sjálfstæður alþjóðlegur fjárfestingarráðgjafi. Shirar er eigandi að fyrirtækinu Underpinned Inc. í New

18. maí 2021

Þekkingarsetur Vestmannaeyja (ÞSV) óskar eftir að ráða verkefnastjóra í fullt starf frá 1. september n.k. Starfið felst m.a. í ráðgjöf, verkefnastjórnun og frumkvæðisvinnu á sviði byggðamála samkvæmt sérstökum samstarfssamningi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Starfsstöðin er í skapandi vinnuumhverfi ÞSV og samstarfaðila að Ægisgötu 2 í Eyjum. Nánari upplýsingar um starfið má finna hér á