Bjarni Guðmundsson, framkvæmdarstjóri SASS og Þórdís Kolbrún Reykfjörð, ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, undirrituðu samninginn þann 12. febrúar 2021. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hafa undirritað samstarfssamning um stofnun áfangastaðastofu á Suðurlandi. SASS eru þar með önnur landshlutasamtökin til að taka ákvörðun um stofnun áfangastaðastofu á starfssvæði sínu.
Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunnnámi og námi á meistarastigi við háskóla til sumarvinnu að rannsókna- og þróunarverkefnum. Framlengdur umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2021 kl. 15.00. Styrkir verða veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) stóðu fyrir opnum kynningarfundi um Uppbyggingarsjóð Suðurlands fimmtudaginn 4. febrúar 2021. Fundurinn var í beinu streymi á ZOOM og eru allir áhugasamir hvattir til að horfa á upptökuna hér að neðan þar sem farið er yfir markmið, áherslur og umsóknarferli sjóðsins ásamt því að ráðgjöf SASS var kynnt. Sjóðurinn er nú
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) standa fyrir opnum kynningarfundi um Uppbyggingarsjóð Suðurlands n.k. fimmtudag kl: 12:15 – 13:00. Fundurinn verður í beinu streymi á ZOOM og eru allir áhugasamir hvattir til að taka hádegið frá og kynna sér markmið, áherslur og umsóknarferli sjóðsins ásamt því að ráðgjöf SASS verður kynnt. Sjóðurinn er nú opinn fyrir umsóknir
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vorúthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands árið 2021. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileyka atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að
Aðsóknin í Hæfnhringi – stuðningur fyrir konur í fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni, hefur farið fram úr björtustu vonum. Nú þegar 2 umferð Hæfnihringa á netinu, er að fara í gang, hafa rúmlega 40 konur skráð sig. Við munum hefja leik innan skamms í 6 hópum. Verkefnið var sett upp sem samstarfsverkefni milli atvinnuþróunarfélaga og landshlutasamtaka síðastliðið
Menntaverðlaun Suðurlands 2020, sem Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita, voru afhent í þrettánda sinn fimmtudaginn 14. janúar s.l. á árlegum hátíðarfundi Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands. Athöfnin fór fram í fjarfundi og var send út frá Fjölheimum á Selfossi. Alls bárust sex tilnefningarnar þetta árið: Magnús J, Magnússon fyrrverandi skólastjóri Barnaskólans á Eyrabakka og Stokkseyri fyrir starf
Hæfnihringir eru byggðir á aðferðafræði, sem kallast aðgerðanám, en það grundvallast á því að nota raunverulegar áskoranir, verkefni og tækifæri sem grunn fyrir lærdóm. Markmiðið er að aðstoða frumkvöðlakonur við að komast yfir hindranir með því að styrkja hæfni og færni þeirra, veita stuðning í formi fræðslu og hagnýtra tækja til eflingar og hvatningar ásamt
Í gær var bein útsending frá úthlutun styrkja úr Matvælasjóði en nokkur eftirvænting hefur verið eftir þessari fyrstu úthlutun sjóðsins. Við stofnun sjóðsins leggjast af Framleiðnisjóður landbúnaðarins og AVS. Það voru samtals 62 verkefni sem hlutu styrk að fjárhæð allt að 480 milljónir. Alls bárust 266 umsóknir um styrki upp á 2.7 ma.kr. Hlutverk sjóðsins
Listahátíð í Reykjavík, með stuðningi frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti, býður upp á aðra útgáfu af hinu vel heppnaða verkefni Listagjöf – að þessu sinni um land allt! Frá og með hádegi næstkomandi mánudag, 14. desember, mun almenningur getað pantað Listagjöf fyrir ástvini á sérhönnuðu vefsvæði listagjof.listahatid.is. Gjöfin er án endurgjalds en takmarkast við eina pöntun á mann. Listagjafirnar verða sem