Sjö landshlutasamtök á Íslandi hafa tekið sig saman um að bjóða stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum þátttöku í nýrri útgáfu af Ratsjánni, samtengdu verkefni sem hefst í upphafi árs 2021. Ratsjáin er ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka nýsköpunarhæfni sína, hraða mikilvægum breytingaferlum og öðlast aukna yfirsýn og
Þátturinn Samfélagið sem er á dagskrá Rásar 1 tók viðtal við framkvæmdastjóra Orkídeu Svein Aðalsteinsson föstudaginn 6. nóvember síðastliðin. Hægt er að hlusta á viðtalið HÉR en viðtalið hefst þegar rúmar 26 mín.eru liðnar af þættinum.
Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga hefur fjallað um tillögur fagráðs atvinnu og nýsköpunar annars vegar og fagráðs menningar hins vegar, um úthlutun verkefnastyrkja úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands. Um var að ræða síðari úthlutun sjóðsins á árinu 2020. Umsóknir voru samtals 165, í flokki atvinnu- og nýsköpunarverkefna bárust 72 umsóknir og 93 umsóknir í flokki menningarverkefna. Að þessu
Gengið hefur verið frá ráðningu á framkvæmdastjóra og rannsókna- og þróunarstjóra Orkídeu. Sveinn Aðalsteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri nýsköpunarverkefnisins Orkídeu. „Ég tel að aukin áhersla á nýsköpun á Suðurlandi tali beint inn í þá landkosti og mannauð sem svæðið býður upp á. Áhugi samfélagsins á nýtingu grænnar orku til matvælaframleiðslu hefur aukist mikið sem er
Á ársþingi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga sem haldið var í fjarfundi dagana 29. og 30. október var Rut Ingólfsdóttur og Birni Bjarnasyni að Kvoslæk í Fljótshlíð veitt Menningarverðlaun Suðurlands 2020. Verðlaunin eru samfélags- og hvatningarverðlaun á sviði menningar á Suðurlandi. Er þetta í annað sinn sem verðlaunin eru veitt. Alls skiluðu sér inn 15 tilnefningar um
Í síðust viku rann út umsóknarfrestur til að sækja um styrk í Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Mikill fjöldi umsókna barst sjóðnum eða samtals 165 umsóknir. Umsóknirnar skiptast í eftirfarandi tvo flokka, menningarverkefni samtals 93 umsóknir og atvinnu- og nýsköpunarverkefni samtals 72 umsóknir. Allir umsækjendur fá sendan tölvupóst um niðurstöðu fagráðs og stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga eigi síðar
Ert þú kona með rekstur (eða hyggur á rekstur) á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi, Suðurlandi, eða Vestfjörðum? Hefurðu upplifað tíma þar sem þú stendur frammi fyrir áskorun eða verkefni og þyrftir helst að fá ráð frá einhverjum, sem hefur gengið í gegnum svipað? Til stendur að bjóða upp á svokallaða hæfnihringi á netinu fyrir
Undirritaður hefur verið samningur milli Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSu) og Valdimars Árnasonar eiganda Selfoss Hostel um að rekin verði heimavist fyrir skólann að Austurvegi 28 Selfossi. Samningurinn er afrakstur vinnu starfshóps sem skipaður var af stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) í janúar 2019. Í hópnum sitja Einar Freyr Elínarson oddviti Mýrdalshrepps og formaður hópsins, Anton Kári
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) óska eftir tilnefningum til samfélags- og hvatningarverðlauna á sviði menningarmála á Suðurlandi. Um er að ræða samfélagslega viðurkenningu sem Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) mun veita formlega á ársþingi sínu í október 2020. Er þetta í annað skipti sem hvatningarverðlaunin verða veitt. Tilnefningar skal senda á netfangið menningarverdlaun@sass.is eigi síðar en mánudaginn
Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu um land allt. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni