fbpx

Fréttir

27. nóvember 2019

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra og fulltrúar landshlutasamtakanna undirrituðu nýverið nýja sóknaráætlunarsamninga við hátíðlega athöfn í ráðherrabústaðnum. Eva Björk Harðardóttir formaður stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) undirritaði samninginn fyrir hönd samtakanna. Grunnframlag ríkisins til samninganna árið 2020 nemur 716 milljónum króna en með viðaukum og framlagi sveitarfélaga nema framlög alls 929 milljónum króna. Heildargrunnframlag

8. nóvember 2019

Tækifæri fyrir nemendur, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög til samstarfs Atvinnuskapandi nemendaverkefni á Suðurlandi er eitt af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar Suðurlands. Verkefninu er ætlað að hvetja til samstarfs milli nemenda og fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga. Það eru Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) sem stýra verkefninu. Nemendur vinna raunhæf verkefni, til dæmis lokaverkefni, með það að markmiði að verkefnið

5. nóvember 2019

Á ársþingi samtaka sunnlenskra sveitarfélaga sem haldið var á Hótel Geysi 24.-25. október var Kirkjubæjarstofu á Kirkjubæjarklaustri veitt Menningarverðlaun Suðurlands 2019. Verðlaunin eru samfélags- og hvatningarverðlaun á sviði menningar á Suðurlandi. Um er að ræða fyrstu  menningarverðlaunin sem samtökin veita í þessari mynd, sem ná þvert yfir allan landshlutann. Það voru alls 19 tilnefningar sem

16. október 2019

Út er komin skýrslan Landfræðilegt og efnahagslegt litróf garðyrkju á Íslandi. Meðal niðurstaðna er að rekstrartekjur garðyrkju á Íslandi voru 6,1 ma.kr. árið 2017 á meðan þær voru 73,2 ma.kr. í öllum landbúnaði á Íslandi. Tekjurnar höfðu aukist um 800 milljónir króna á tímabilinu 2008-2017 eða 13% að raungildi en 13 ma.kr. í öllum landbúnaði. Sé horft til skiptingar

11. september 2019

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óska eftir að ráða dugmikinn einstakling í starf fulltrúa/gjaldkera á skrifstofu samtakanna, með aðsetur að Austurvegi 56 á Selfossi. Fulltrúi annast almenna skrifstofuþjónustu og ber ábyrgð gagnvart framkvæmdastjóra. Helstu verkefni:  Umsjón með afgreiðslu og móttöku skrifstofunnar  Greiðsla reikninga og styrkja  Almenn skrifstofuþjónusta fyrir starfsmenn SASS og samstarfsstofnanir samtakanna  Setja upplýsingar á heimasíður

29. ágúst 2019

Fimmtudaginn 5. september kl. 9-13.30 verður haldin ráðstefna um fjórðu iðnbyltinguna samtímis á sex stöðum á landinu, Borgarnesi, Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Reyðarfirði og Selfossi. Á Selfossi verður ráðstefnan á Hótel Selfossi en ráðstefnugestir geta einnig tekið þátt í gegnum netið. Skráning á ráðstefnuna fer fram á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.  Ráðstefnunni verður einnig streymt í Nýheimum

27. ágúst 2019

  Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Markmið Uppbyggingarsjóðs eru að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi, efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi og að styðja við atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni á Suðurlandi.

16. ágúst 2019

Tækniþróunarsjóður heldur kynningarfund á Selfossi á skrifstofu SASS, Austurvegi 56 miðvikudaginn 21. ágúst kl.12.00–13.00 og í Vestmannaeyjum, í Þekkingarsetri Vestmannaeyja, Ægisgötu 2 fimmtudaginn 22. ágúst kl.12.00–13.00 Dagskrá Starfsmaður Rannís fer yfir möguleika varðandi opinberan stuðning frá Rannís. Farið verður yfir mikilvæg atriði sem þarf að hafa í huga við umsóknargerð. Styrkjaflokka Tækniþróunarsjóðs Skattfrádrátt vegna rannsókna-

13. ágúst 2019

Heilbrigðisstefna til ársins 2030 Opinn kynningarfundur í fundarsal Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. 14. ágúst kl. 17 – 19. Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Þetta eru mikilvæg tímamót fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu. Á fundinum verður fjallað um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til

7. ágúst 2019

Nemendur með lögheimili á Suðurlandi sem stunda nám á höfuðborgarsvæðinu geta keypt sér Nemakort hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga. Kortið gildir eina önn innan svæðis á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu. Nemakortið kostar 90.000 kr. sem leggja þarf inn á reikning Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.  Reikningsnúmer: 586-26-100122 á kennitölu: 480775-0159. Svona gerir þú: Fyrst leggur þú inn á