fbpx

Fréttir

27. nóvember 2017

Hér með er óskað eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2017. Rétt til að tilnefna til verðlaunanna hafa allir þeir sem tengjast skóla- og menntunarstarfi með einhverjum hætti, sveitarfélög, skólanefndir, foreldrar, kennarar og starfsfólk skóla og annað áhugafólk um menntun og skólastarf. Tilnefningum skal fylgja ítarlegur rökstuðningur. Tilnefningar skulu hafa borist til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56 Selfossi, eigi

16. nóvember 2017

Byggðastofnun stendur fyrir málþingi um raforkumál á Íslandi þriðjudaginn 21. nóvember næst komandi í Hofi á Akureyri.  Málþingið hefst kl. 13:00 og stendur til kl. 16:30. Boðið verður upp á léttan hádegisverð frá kl. 12:00. Umfjöllunarefni er einkum flutningskerfi raforku á Íslandi. Atvinnufyrirtæki víða um land þurfa raforku til starfsemi sinnar, bæði til að fá

14. nóvember 2017

Verkefnastjórn Sóknaráætlunar Suðurlands á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga fjallaði um tillögur fagráðs nýsköpunar og fagráðs menningar um úthlutun styrkveitinga til verkefna úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands, í síðari úthlutun ársins. Alls bárust sjóðnum 98 umsóknir að þessu sinni, þar af 36 nýsköpunarverkefni og 62 menningarverkefni. Niðurstaða verkefnastjórnar er að veita 47 menningarverkefnum styrki að fjárhæð 21.700.000, kr.

13. nóvember 2017

Ný sameiginleg lögreglusamþykkt fyrir sveitarfélögin í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi hefur nú tekið gildi. Samþykktin, sem var unnin í nánu samstarfi við embætti lögreglustjórans á Suðurlandi, mun einfalda störf lögreglunnar í landshlutanum til muna. Áður voru mismunandi samþykktir í gildi hjá sveitarfélögunum en nú er sameiginleg lögreglusamþykkt fyrir sveitarfélögin fjórtán sem heyra til umdæmis lögreglustjórans

7. nóvember 2017

Á dögunum var sett af stað eitt áhersluverkefni Sókaráætlunar Suðurlands á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Það eru samtals 14 söfn og/eða sýningar á Suðurlandi sem taka þátt í verkefninu. Um er að ræða verkefni þar sem söfnin/sýningarnar hanna og þróa fræðsluefni fyrir gesti á grunnskólaaldri. Afurðinni er ætlað að efla fræðsluþátt safnanna/sýninganna sem og

31. október 2017

Áhersluverkefni eru hluti af byggðaáætlun fyrir Suðurland Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) kalla eftir tillögum að aðgerðum í byggðamálum frá almenningi, samtökum, fyrirtækjum og stofnunum á Suðurlandi. Áhersluverkefni eru þróunarverkefni sem unnin eru af SASS til að uppfylla markmið og megináherslur Sóknaráætlunar Suðurlands, sem er sértæk byggðaáætlun fyrir landshlutann og hluti af byggðaáætlun fyrir landið allt.

23. október 2017

    Á Ársþingi SASS 2017 var kynnt Samgönguáæltun SASS 2017-2026. Áætlunin er ákall sveitarstjórna á Suðurlandi um bætta vegi, þörf fyrir nýframkvæmdir, viðhald og bætt öryggi á vegum. Hún bendir á þörfina á betri fjarskipti, ljósleiðara sem og GSM samband. Þá fjallar áætlunin um almenningssamgöngur að flugsamgöngum og ferjusiglingum meðtöldum. Samgöngáætlun SASS 2017-2026 (.pdf)

19. október 2017

Út er komin skýrsla Ólafs Guðmundssonar um ástand vega á svæðinu og helstu forgangsatriði. Skýrslan var kynnt á fundi um samgöngumál í uppsveitum Árnessýslu , Flóa- og Ásahreppi sem haldinn í Þingborg 17. október 2016. Vegaúttekt á Suðurlandi (.pdf)

16. október 2017

Umsóknarfrestur rennur út 22. október kl. 16 Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands verður fagnað á næsta ári með fjölbreyttri dagskrá um land allt. Kallað er eftir frumkvæði og virkri þátttöku landsmanna við mótun dagskrár afmælisársins og lögð er áhersla á að ná til sem flestra landsmanna.  Minnt er á að umsóknarfrestur fyrir tillögur að verkefnum

9. október 2017

Kynningarfundur Uppbyggingasjóðs Suðurlands í Skaftárhreppi, þriðjudaginn 10. október. Kynningarfundi Uppbyggingasjóðs Suðurlands sem átti að halda í félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri í kvöld, 9. október er frestað. Fundurinn verður haldinn á sama stað kl. 20.00 þriðjudaginn 10. október. Á fundinum verður sjóðurinn kynntur og leiðbeiningar veittar við gerð umsókna ásamt því sem verkefnið “Sögulegar ljósmyndir úr