fbpx

Fréttir

7. september 2016

Námskeið í lagningu og viðhaldi göngustíga verður haldið á Hvanneyri 27. september frá 9:00 til 17:00, ætlað öllum þeim sem koma að skipulagningu, uppbyggingu og viðhaldi göngustíga. Helstu efnisþættir eru: Uppbygging göngustíga, Ragnar Frank, lektor hjá LBHÍ. Göngustígagerð með verktökum eða með aðstoð sérhæfðra sjálfboðaliðahópa?  René Biasone umsjónarmaður Sjálfboðaliðar Umhverfisstofnunar. Kynning á stígagerð við Hólaskóla, Kjartan

6. september 2016

Hádegissúpufundir með kynningu á Uppbyggingarsjóði Suðurlands og handleiðslu um umsóknarformið verða haldnir á eftirtöldum stöðum dagana 9. til og með 16. september nk. Hvoli, Hvolsvelli, föstudaginn 9. september kl. 12:00-13:00 Kirkjubæjarstofu, Klaustri, mánudaginn 12. september kl. 11:30-12:30 Fjölheimum, Selfossi, mánudaginn 12. september kl. 12:00-13:00 Þekkingarsetri Vestmannaeyja, fundarsal 1. h, mánudaginn 12. spetember kl. 12:00-13:00 Kötlusetri,

30. ágúst 2016

Tækniþróunarsjóður stóð fyrir kynningu á breyttum styrkjaflokkum og umsóknarferli, þriðjudaginn 30. ágúst, í húsnæði Fjölheima við Tryggvagötu 13, Selfossi. Þeir sem komust ekki á fundinn geta séð efni fundarins hér Ítarlegar uppýsingar um styrkmöguleika má finna hér á heimasíðu Rannís Opið er fyrir umsóknir í Tækniþróunarsjóð og umsóknarfrestur  er til 15. september 2016 kl. 16:00  

30. ágúst 2016

Byggðastofnun hefur birt á heimasíðu sinni nýja stöðugreiningu sem lýsir byggðaþróun á Íslandi síðustu misserin með uppfærslu á upplýsingum um nokkra mikilvæga þætti. Stöðugreininguna má sjá hér

29. ágúst 2016

Alþjóðleg ráðstefna um forystu og stjórnun í sjálfbærri ferðaþjónustu verður haldin dagana 6., 7. og 8. október nk. Um er að ræða sambland af vinnufundum, fyrirlestrum og vettvangsferðum með þátttöku virtra erlendra og innlendra leiðbeinenda. Dagskráin er sem hér segir: 6. október: Ráðstefna á Hótel Sigló á Siglufirði 7. október: Ráðstefna í Hofi á Akureyri

29. ágúst 2016

Skipulagsdagurinn 2016 verður haldinn fimmtudaginn 15. september nk. Um er að ræða heils dags ráðstefnu á Grand Hótel í Reykjavík sem Skipulagsstofnun stendur að í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. Hún er ætluð öllum sem koma að gerð skipulags, sveitarstjórnarmönnum, skipulagsfulltrúum sveitarfélaga, skipulagsráðgjöfum og hönnuðum. Að þessu sinni verður áhersla Skipulagsdagsins á gæði byggðar og

24. ágúst 2016

Vegur til farsældar? Mat og mælingar á árangri skólastarfs. Ráðstefnan verður haldin þriðjudaginn 20. september 2016 og hefst kl. 13:00 í salnum Kötlu á Hótel Sögu. Ráðstefnugjald er 4.000.- Fyrirlesarar: Paulo Santiaqo Analyst in the OECD Directorate for Education and Skills Þorlákur Axel Jónsson, lektor við Háskólann á Akureyri Anna Kristín Sigurðardóttir, dósent við Menntavísindasvið

22. ágúst 2016

Byggðastofnun, Austurbrú, Breiðdalshreppur, Samband íslenskra sveitarfélaga og SSA standa saman að ráðstefnu á Breiðdalsvík 14.-15. september, þar sem fjallað verður um stöðu og þróun landsbyggðanna á Íslandi út frá nýlegum rannsóknum og þróunarverkefnum. Laila Kildesgaard framkvæmdastjóri svæðissveitarfélagsins Borgundarhólms, sem er dönsk eyja með 40 þúsund íbúa og liggur mun nær S-Svíþjóð en Danmörku, mun einnig

22. ágúst 2016

FENÚR, fagráð um endurnýtingu og úrgang, í samvinnu við WASTECOSMART, stendur fyrir málþingi um hringrásarhagkerfið og þau tækifæri sem felast í því fyrir sveitarfélög og aðra aðila til að stýra meðhöndlun úrgangs í framtíðinni og taka jafnframt á öðrum knýjandi umhverfismálum eins og t.d. loftslagsbreytingum. Málþingið fer fram 30. ágúst  frá kl. 9:30 til 12:15 á Nordica

18. ágúst 2016

Frítt verður í alla strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu á Menningarnótt, laugardaginn 20. ágúst.  Strætó ekur samkvæmt laugardagsáætlun á Menningarnótt. Ekið er samkvæmt hefðbundinni áætlun frá morgni og fram til kl. 22.30. Eftir þann tíma er leiðakerfi Strætó rofið og við tekur sérstakt leiðakerfi sem miðar að því að koma gestum Menningarnætur heim til sín eins fljótt