fbpx

Fréttir

18. janúar 2016

Vinnumálastofnun/velferðarráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2016 lausa til umsóknar. Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum. Verkefnið sé í eigu konu/kvenna (50%) og stjórnað af konu. Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar Viðskiptahugmynd sé vel útfærð Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetningar

18. janúar 2016

Menntaverðlaun Suðurlands voru afhent fimmtudaginn 14. janúar á hátíðarfundi Vísinda-og rannsóknarsjóðs Suðurlands í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Verðlaunin komu í hlut Sérdeildar Suðurlands. Gunnar Þorgeirsson, formaður SASS, flutti ávarp og forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Kristínu Björk Jóhannsdóttur, deildarstjóra, verðlaunin. Sérdeild Suðurlands, Setrið, hefur á undanförnum árum verið að efla starf sitt verulega en það snýr m.a.

18. janúar 2016

Opnuð hefur verið ný sameiginleg heimasíða markaðsstofa landshlutanna sex sem eru á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi, Austurlandi, Reykjanesi og á Suðurlandi. Hlutverk þeirra er að samræma markaðs-og kynningarmál í ferðaþjónustu, sjá um útgáfumál, móttöku blaðamanna ásamt beinni markaðssetningu og vinna að vöruþróun í ferðaþjónustu. Nýja heimasíðan er aðgengileg hér

14. janúar 2016

21. – 23. janúar verða haldnir fjórir umræðu- og kynningarfundir á Suðurlandi um óáþreyfanlegan menningararf (menningarerfðir) og sáttmála UNESCO um verndun hans. Fundirnir á Hvolsvelli og á Klaustri verða í samstarfi við Brynju Davísdóttur framkvæmdarstjóra Kötlu Jarðvangs sem fer yfir stöðu jarðvangsins eftir úttekt matsmanna og innleiðingu í UNESCO Global Geoparks 2015. Menningarerfðir eru til

11. janúar 2016

Á fundi sveitarstjórnar Hrunamannahrepps 3. desember sl. kynnti oddviti drög að viljayfirlýsingu frá Vesturporti um samstarf og fyrirhugaðar áætlanir  í landi Grafar á Flúðum. Sveitarstjórn samþykkti  að leggja sitt af mörkum til að verkefnið getið orðið að veruleika. Áætlanir snúa að því að koma upp sögusöfnum í Byggðasafninu í Gröf, auk þess sem gert er

11. janúar 2016

Úrslit liggja fyrir í kosningu um nafn á sveitarfélaginu Skeiða-og Gnúpverjahreppur. Niðurstaðan var sú að íbúar vilja að nafn á sveitarfélaginu haldist óbreytt og haldi því áfram að heita Skeiða-og Gnúpverjahreppur. Á kjörskrá voru 397, atkvæði greiddu 209 eða 52,6.

7. janúar 2016

Laugardaginn 9. janúar verður kosið um nafn á sveitarfélagið Skeiða-og Gnúpverjahrepp.  Örnefnanefnd hefur kveðið upp úrskurð um þau nöfn sem tillögur bárust um og heimilt er að nota. Tillögurnar sem kosið verður um eru: Eystribyggð – Eystrihreppur – Skeiða-og Gnúpverjahreppur – Þjórsárbakkar – Þjórsárbyggð – Þjórsárhreppur – og Þjórsársveit.    

7. janúar 2016

Föstudaginn 8. janúar verður haldinn kynningarfundur í húsakynnum Rannís um styrkjamöguleika innan menntahluta Erasmus + og menningarhluta Creative Europe áætlananna. Aðgangur er öllum opinn, vinsamlega skráið þátttöku hér Fundurinn verður haldinn í Borgartúni 30, 3. hæð, kl. 12:00-13:00 Fundurinn verður einnig sendur út beint á netinu. Til að taka þátt í fjarfundinum er hægt að

6. janúar 2016

Á vefsíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur fram að birt hefur verið ný reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga. Helstu breytingar frá eldri reglugerð felast í útfærslu á viðauka við fjárhagsáætlun en það ákvæði var nýjung í sveitarstjórnarlögum, gerð yfirlits um ábyrgðir og skuldbindingar sem flokkast utan samstæðu reikningsskilanna, endurbætt framsetningu ársreikninga og fjárhagsáætlana, endurskoðuð framsetning bókhaldslykla

30. desember 2015

Þann 3. janúar 2016 verða eftirfarandi breytingar gerðar á leiðakerfi Strætó bs á Suðurlandi: Tvær stoppistöðvar bætast við í Árborg á leiðum 74 og 75, annars vegar við Barnaskólann á Stokkseyri og hins vegar við Eyrarveg 11 á Selfossi (Eyrarvegur / Kirkjuvegur). Stoppistöðin Orkan-Selfossi verður Olís-Selfossi og verður staðsett á móti Olís. Leið 52: Ferðirnar kl.