Frumkvöðladagur uppsveitanna verður haldinn fimmtudaginn 12. mars kl. 13:00 – 17:00 á Café Mika, Reykholti. Dagurinn er haldinn í samstarfi sveitarfélaganna í uppsveitum Árnessýslu og skipulagður af ferðamálaráði uppsveita Árnessýslu. Markmiðið er að stuðla að nýsköpun og eflingu atvinnutækifæra á svæðinu. Hugað verður að því hvernig er að hefja atvinnurekstur eða þróa. Stoðkerfið verður kynnt,
Rótarýklúbbur Rangæinga í samstarfi við Lögreglustjórann á Suðurlandi býður til málþings í Gunnarsholti 26. febrúar 2015 um náttúruvernd og öryggi í ferðamennsku. Leitað verður svara við því hvernig byggja megi upp ferðaþjónustu í sátt við náttúruna með öryggi ferðalanga að leiðarljósi. Þingið hefst kl. 12:30 og lýkur kl. 16:00
Vegna framkvæmda á Selfossi, á Austurvegi og Tryggvagötu, verða vagnar að aka aðrar leiðir til og frá N1 stöðinni. Ekið er Eyraveg, Fossheiði að FSu, frá Fsu eftir Tryggvagötu inn á Engjaveg, Rauðholt og svo Austurveg austanmegin. Settar verða upp nýjar biðstöðvar á meðan á framkvæmdum stendur, sunnan megin við hringtorgið hjá Ráðhúsinu og á Engjavegi
Vegagerðin og Sveitarfélagið Árborg auglýsa lokun á þjóðvegi nr. 1 vegna framkvæmda á gatnamótum Austurvegar og Tryggvagötu á Selfossi. Gatnamótunum verður lokað þann 25. febrúar nk. og verða þau lokuð í allt að 6 vikur. Sjá kort
Á heimasíðu Fjársýslu ríkisins má finna uppgjör á sóknargjöldum fyrir árið 2014. Þessi gjöld eru greidd af ríkissjóði 15. hvers mánaðar til þjóðkirkjusafnaða og trúfélaga utan þjóðkirkjusafnaða. Innanríkisráðuneytið ákvarðar fjárhæð sóknargjalds. Af greiðslum til þjóðkirkjusafnaða er 5% greitt til héraðssjóðs. Til viðbótar við bein sóknargjöld greiðir ríkið einnig inn í Jöfnunarsjóð þjóðkirkjusókna 18,5% og í
Önnur Menntalest Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga fer af stað 13. mars 2015, en Menntalestin á Suðurlandi er eitt af verkefnum Sóknaráætlunar Suðurlands. Að þessu sinni er sjónum beint að framhaldsskólum á Suðurlandi, en fyrstu lestinni var beint að grunnskólanemendum og sköpun í skólastarfi. Markmið Menntalestarinnar að þessu sinni er að vekja áhuga á tækni og vísindum.
Fanney Björg Sveinsdóttir, verkefnastjóri og ráðgjafi SASS – Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga á Hornafirði, er mætt aftur til starfa eftir fæðingarorlof. Fanney veitir margþætta ráðgjöf og handleiðslu til frumkvöðla, fyrirtækja, rekstraraðila og einstaklinga. Þjónustan felst m.a. í handleiðslu við gerð rekstrar- og viðskiptaáætlana og styrkumsókna. Auk þess er hægt að kanna leiðir og möguleika til hagræðingar,
Tíðindi, 2. tbl. 3. árg. fréttablaðs Sambands íslenskra sveitarfélaga er komið út. Tíðindi má lesa hér
Samband íslenskra sveitarfélaga í samstarfi við velferðaráðuneytið heldur námskeið fyrir fulltrúa í félagsmálanefndum á Stracta hóteli, Hellu, miðvikudaginn 25. febrúar frá kl. 10:00 til 16:00 Námskeiðslýsing: Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu og skilning á hlutverki fulltrúa í félagsmálanefnd og starfsemi félagsþjónustu sveitarfélaga. Fjallað verður almennt um félagsþjónustuna og þann ramma sem lög um
1. mars nk. mun gjaldskrá Strætó hækka, það hefur í för með sér að eitt gjaldsvæði hækkar úr kr. 350.-kr. í 400.- Eins mánaða kort fyrir eitt gjaldsvæði hækkar úr kr. 9.300.- í kr.10.900.- Þriggja mánaða kort fyrir eitt gjaldsvæði hækkar úr kr. 21.000.- í kr. 23.900.- Á milli Hveragerðis og Reykjavíkur eru þrjú gjaldsvæði