Bæjarskrifstofur Hveragerðisbæjar sigruðu í vinnustaðakeppni 3 – 9 starfsmenn í landsleiknum, Allir Lesa 2014. 6 starfsmenn bæjarins voru í liðinu og var meðalfjöldi lesinna mínútna á mann 2 klst, 21 mínúta og 16 sekúndur. Landsleikurinn ALLIR LESA fór fram í fyrsta sinn 17. október til 16. nóvember 2014 og lauk honum á degi íslenskrar tungu.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, boðar til opins fundar um frumvarp til laga um náttúrupassa fimmtudaginn 11. desember kl. 17:00 í Tryggvaskála á Selfossi. Á fundinum mun ráðherra kynna frumvarpið og svara fyrirspurnum. Fundarstjóri verður Ásborg Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi Uppsveita Árnessýslu. Allir áhugasamir hvattir til að mæta.
Á 210. fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar sem haldinn var, 6. desember sl. var eftirfarandi bókun lögð fram: „Bæjarstjórn Hornafjarðar skorar á dómsmálaráðherra að breyta nýútkominni reglugerð um Lögregluumdæmi lögreglustjóra sem birt var á vef Innanríkisráðuneytis s.l. fimmtudag. 4. desember á þann veg að Sveitarfélagið Hornafjörður heyri undir lögregluumdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi og fylgi þannig kjördæmamörkum. Haldið
Menningarverðlaun Bláskógabyggðar voru afhent í fyrsta skipti á jólamarkaði Kvenfélags Laugdæla laugardaginn 29. nóvember. Menningarmálanefnd Bláskógabyggðar hafði veg og vanda af afhendingu verðlaunanna. Verðlaunin komu að þessu sinni í hlut Ungmennafélags Biskupstungna fyrir að standa að útgáfu Litla – Bergþórs í 35 ár og útgáfu á sögu félagsins “Ungmennafélag Biskupstungna – 100 ára saga”. Það
Heimildarmyndin „Í sambýli við náttúruöflin“ verður sýnd á RÚV sunnudaginn 7. des. kl. 18:25, endursýnd 20. des. kl. 16.55 Í myndinni er litið til Hveragerðis sem dæmi um samfélag sem lært hefur að lifa við ógn og afleiðingar jarðskjálfta. Brugðið er upp svipmyndum af glímu íbúa þess við jarðskjálfta í gegnum tíðina, rætt við fulltrúa
Atvinnu- og umhverfisnefnd Flóahrepps hefur lagt það til við sveitastjórn að sveitarfélagið taki þátt í því átaki að fá fólk til þess að hætta að nota plastpoka undir sorp og til innkaupa og nota heldur fjölnota innkaupapoka eða mais poka. Þá leggur nefndin til að sveitastjórn sýni hug í verki og skoði kostnað við að
Frumkvöðlasetrið FRUSS opnaði formlega á Selfossi fimmtudaginn 27. nóvember. Frumkvöðlasetrið er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og SASS, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og er staðsett í húsakynnum SASS við Austurveg 56 á Selfossi. Á frumkvöðlasetrinu geta frumkvöðlar fengið aðstöðu til að vinna að framgangi hugmynda sinn gegn vægu gjaldi. Einnig stendur þeim til boða aðstaða á öðrum starfsstöðvum
Hin árlega Sjávarútvegsráðstefna var haldin á Grand Hótel Reykjavík, dagana 20. og 21. nóvember. Þar voru haldin mörg athygliverð erindi sem er að finna HÉR
Fimmtudaginn 27. nóvember kl. 15:00 – 16:00, verður formleg opnun frumkvöðlaseturs SASS og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í húsnæði SASS að Austurvegi 56, Selfossi. Frumkvöðlasetrið – FRUSS – verður rekið í samstarfi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Þar með er frumkvöðlastarf á Suðurlandi tengt frumkvöðlaneti NMI og því ágæta starfi sem þar fer fram. Áhugasamir hvattir
Samband íslenskra sveitarfélaga gaf út í byrjun október árbók sveitarfélaga 2014. Bókin er nú komin inn á heimasíðu sambandsins. Í bókinni er að finna upplýsingar um rekstur og efnahag sveitarfélaganna sem byggðar eru á niðurstöðum ársreikninga þeirra árið 2013. Einnig eru birtar í árbókinni upplýsingar um ýmis önnur atriði sem varða sveitarfélögin og rekstur þeirra