Nýverið var auglýst eftir umsóknum um styrki til eflingar atvinnulífs- og nýsköpunar á Suðurlandi. Upphæðin var óvenju há að þessu sinni eða 50 milljónir króna. Alls bárust 140 umsóknir og hefur fjöldi umsókna aldrei verið meiri. Út frá gæðum og fjölda umsókna þarf óhjákvæmilega að neita töluverðum fjölda góðra verkefna um styrkveitingu að þessu sinni.
Vekjum athygli á að þetta námskeiðið verður sent í fjarfundi á Vík og Hvolsvöll þann 20. nóvember n.k. Á námskeiðinu er farið yfir mikilvægi skýrrar stefnu í markaðsmálunum, skoðað hverra er best að selja til, hvernig best er að aðgreina sig frá samkeppninni, hugtakið brand, eða ímyndarstjórnun, útskýrt og hvernig sú aðferðafræði getur eflt markaðsstarfið
Námskeiði í WordPress vefsíðugerð sem haldið var á Selfossi lauk í gær. Fólk með mjög fjölbreytt áhugasvið sat námskeiðið og komu margar flottar hugmyndir af heimasíðum fram. Kennari var Elmar Gunnarsson frá Hype.
Ársþing SASS var haldið á Hótel Heklu, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, 24. og 25. október sl. Til þingsins mættu um 60 sveitarstjórnarmenn auk framkvæmdastjóra sveitarfélaganna og gesta. Þegar flest var sátu um 90 manns þingið. Ársþingið ávörpuðu ráðherrarnir Hann Birna Kristjánssdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir og einnig Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Menningarupplifun á Safnahelgi á Suðurlandi 31.október – 3.nóvember nk.. Tónlist Marlene Dietrich í Eyjum, Mugison og félagar á Selfossi, draugasögur á Stokkseyri, tónlist og frásagnir Þórðar í Skógum, saumamaraþon á Hvolsvelli, gönguferð í Flóanum með Guðna Ágústssyni og margt fleira. Dagskráin hefst með setningarhátíð í Þjósárstofu í Árnesi fimmtudaginn 31. október kl. 16:00. Ávörp, tónlist
Þann 14. október nk., verður haldið málþing um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðra. Málþingið verður opið öllum og fer fram á Grand hotel. Skráningarfrestur rennur út mánudaginn 7. október en skráning fer fram á vef Velferðaráðuneytisins Fréttatilkynninguna má sjá hér og dagskránna hér. Vakin er athygli á því að bein útsending verður frá málþinginu.
Helgina 19. – 20. október er boðið til íbúaþings í Skaftárhreppi á vegum Byggðastofnunar, Skaftárhrepps, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Háskólans á Akureyri. Þingið hefst kl. 11 á laugardegi og stendur til kl. 16 og síðan frá kl. 11 – 15 á sunnudeginum. Þátttakendur á þinginu móta sjálfir dagskrána. Allt er til umræðu, staða og framtíð
Ársþing SASS verður haldið dagana 24. og 25. október nk. Að þessu sinni fer þingið fram á Hótel Heklu, Skeiða-og Gnúpverjahreppi. Hér má sjá Dagskrá ársþings 2013
Miðvikudaginn 23. október verður haldið málþing um sunnlenska ferðaþjónustu. Málþingið verður haldið í tengslum við ársþing SASS og haldið á Hótel Heklu. Áhersla verður á samræðu milli hagsmunaaðila í ferðaþjónustu á Suðurlandi. Með erindi á málþinginu verða Sandra Brá Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri Friðar & Frumkrafta, Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Höfn og Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í
Miðvikudaginn 25. september var haldinn stofnfundur klasans Fuglar á Suðurlandi. Markmiðið með klasanum er að bæta og byggja upp innviði ferðaþjónustunnar á Suðurlandi, með tilliti til fuglatengdrar ferðaþjónustu og möguleikum á að markaðssetja Suðurland sem fuglaskoðunarsvæði á alþjóðavísu. Ráðinn var klasastjóri, tímabundið til verkefnisins, Guðríði Ester Geirsdóttir. Verkefnastjóri er Þórður Freyr Sigurðsson, ráðgjafi hjá SASS.