fbpx

Fréttir

28. febrúar 2013

Skipulagsstofnun og umhverfis- og auðlindaráðuneytið mun kynna nýja skipulagsreglugerð á Hellu, safnaðarheimili Oddakirkju, Dynskógum 8 mánudaginn 4. mars kl. 10-12. Á fundinum munu fulltrúar Skipulagsstofnunar og ráðuneytisins gera grein fyrir nýrri skipulagsreglugerð og svara fyrirspurnum. Gert er ráð fyrir tveggja klukkustunda fundi  fyrir kynningu og umræður og er fundurinn öllum opinn.    

12. febrúar 2013

Laugalandsskóli í Holtum hlaut Menntaverðlaun Suðurlands 2012 fyrir framúrskarandi kennslu í framsögn og framkomu og árangur í lestrarkeppnum undanfarinna ára. Forseti Íslands afhenti verðlaunin í tengslum við hátíðarfund Fræðslunets Suðurlands í janúar sl. Á fundinum voru einnig afhentir styrkir vísindasjóðs Fræðslunets Suðurlands og Háskólafélags Suðurlands

28. janúar 2013

Ríksstjórnin hélt fund á Hótel Selfossi sl. föstudag.  Í kjölfar ríkisstjórnarfundarins hélt ríkisstjórnin fund með fulltrúum allra sveitarstjórnarmanna á Suðurlandi þar sem rætt var um málefni þeirra.  Að loknum þeim fundi var skrifað undir ýmsa samninga sem varðar verkefni  sem eru framundan á Suðurlandi. Föstudaginn 25. janúar  var skrifað undir samning mennta- og menningarmálaráðuneytisins við

24. janúar 2013

Ríkisstjórnin heldur reglulegan ríkisstjórnarfund á Selfossi á morgun, föstudag, 25. janúar.  Fundurinn hefst kl. 09:00 á Hótel Selfossi. Rædd verða hefðbundin málefni en auk þess verkefni  sem sérstaklega tengjast Suðurlandi. Að loknum ríkisstjórnarfundi verður haldinn hádegisverðarfundur með sveitarstjórnarfólki á Suðurlandi þar sem skipst verður á skoðunum og fyrirspurnum svarað. Blaðamannafundur verður haldinn á Hótel Selfossi

4. janúar 2013

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og Atvinnuþróunarfélag Suðurlands sameinuðust undir merkjum SASS á aukaaðalfundi þann 14. desember 2012.  Sameiningin tók gildi þann 1. janúar.  Í desember var auglýst eftir umsóknum í störf atvinnuráðgjafa og verkefnastjóra, á Höfn og á Selfossi.  Alls bárust 24 umsóknir í störfin og er stefnt að því að ganga frá ráðningum í

3. janúar 2013

Nú um áramótin sameinaðist starfsemi  Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Atvinnuþróunarfélags  Suðurlands undir nafni samtakanna og atvinnuþróunarfélagið lagt niður sem sérstök stofnun.  Sameiningin er í samræmi við aðalfundarsamþykktir  beggja stofnananna   frá 18. og 19. október sl. Ekki verða neinar eðlisbreytingar á starfseminni við þessi skipti og geta því fyrirtæki og einstaklingar leitað til SASS um ráðgjöf

12. desember 2012

Föstudaginn 14. desember sl. var aukaaðalfundur SASS haldinn á Hótel Selfoss. Erindi og fundargerðir má sjá hér til vinstri á síðunni.

6. desember 2012

 Verkefnisstjórar/ráðgjafar á sviði atvinnu- og byggðaþróunar Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) óska eftir að ráða tvo verkefnastjóra/ráðgjafa.  Annar ráðgjafinn verður með starfsstöð á Hornafirði en hinn á Selfossi. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga og  Atvinnuþróunarfélag Suðurlands verða sameinuð um  nk. áramót  til þess að að takast á við aukin verkefni  landshlutasamtakanna í framtíðinni.  Starfssvæði samtakanna nær frá Ölfusi

29. nóvember 2012

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita árlega verðlaun  fyrir framúrskarandi framlag á sviði menntunar á Suðurlandi sem um leið  er hvatning til frekari dáða. Verðlaunin verða veitt í fimmta sinn nú í vetur.  Allir þeir sem koma að skólastarfi með einhverjum hætti geta fengið verðlaunin; grunnskólar, leikskólar, framhaldsskólar, símenntunarmiðstöðvar, háskólastofnanir,  kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélög/skólanefndir, foreldrafélög