Laugardaginn 8. ágúst nk. verður hinn árlegi markaðsdagur Sólheima þar sem kynning og sala á lífrænt rækuðu grænmeti frá Garðyrkjustöðinni Sunnu á Sólheimum verður til sölu ásamt ýmsu lífrænu góðgæti frá Engi, Hæðarenda og fleirum. Nærandi, hin nýja brauð- og matvinnsla Sólheima, mun einnig bjóða upp á nýbakað, lífrænt brauð og annað góðgæti. Markaðurinn er
Garðyrkju- og blómasýningin „Blóm í bæ“ verður haldin í Hveragerði dagana 26. – 28. júní 2009. Þá munu Hvergerðingar bjóða landsmönnum öllum til veglegrar veislu í samvinnu við öll fagfélög græna geirans á Íslandi. Er þetta í fyrsta sinn sem haldin er sameiginleg sýning allra þessara aðila. Þrátt fyrir að um frumraun hér á landi
Það verður mikið um að vera um allt Suðurland í sumar. Fjöldi hátíða er í uppsiglingu. Nú um helgina eru hátíðir í Flóanum, Þorlákshöfn og Hveragerði og Sjómannadagurinn er að sjálfsögðu haldinn hátíðlegur um allt land á sunnudaginn. Með því að smella á heiti hátíðanna er hægt að fá nánari upplýsingar. Júní Dagsetning Staðsetning Svæði
Á stjórnarfundi SASS 7. maí sl. var samþykkt að halda ársþing SASS 15. og 16. október á Höfn í Hornafirði. Sveitarfélagið Hornafjörður gerðist aðili að SASS um síðustu áramót og því vel við hæfi að halda ársþingið þar.
Athygli er vakin á því að handbók um opinbera vefi er nú orðin aðgengileg á http://ut.is/vefhandbok Handbókin er samstarfsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og forsætisráðuneytisins og er ætlað að vera sveitarfélögum og ríkisstofnunum til leiðsagnar um allt sem viðkemur hönnun og þróun vefja fyrir sveitarfélög og ríkisstofnanir.
Á fundi með fulltrúum SASS og bæjarstjórna Árborgar, Hveragerðis og Ölfuss, sem haldinn var í gær 25. mars, kynntu Kristján L. Möller samgönguráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri tillögur og áætlanir um hvernig hagað verður tvöföldun Suðurlandsvegar. Meginhluti leiðarinnar verður 2+2 vegur en kaflinn milli Litlu kaffistofunnar og Kambabrúnar verður 2+1 vegur með aðskildum akstursstefnum þar
Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Suðurlandi, Menntamálaráðuneytis og Samgönguráðuneytis, um menningarmál. Við styrkúthlutun 2009 verður litið sérstaklega til verkefna á sviði menningartengdra ferðaþjónustu. Að öðru leyti gilda sömu reglur og við fyrri úthlutanir. Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er
Á fundi stjórnar SASS, sem haldinn var 9. janúar sl., var fjallað um fyrirhuguð áform heilbrigðisráðherra um sameiningu heilbrigðisstofnana. Eftirfarandi ályktun var samþykkt: ,,Stjórn SASS lýsir mikilli óánægju með þær hagræðingaraðgerðir sem felast í sameiningu heilbrigðisstofnana á svæðinu sem mun skerða þjónustu og fækka störfum á landsbyggðinni. Er það í hróplegri mótsögn við þá stefnu
Á síðasta stjórnarfundi SASS, sem haldinn var 12. desember sl., var eftirfarandi ályktun samþykkt um byggðaáætlun sem vinna er að hefjast við: ,,Stjórn SASS telur mjög brýnt vegna þeirrar vinnu sem er framundan við byggðaáætlun 2010 – 2013 að höfð verði náin samvinna við atvinnuþróunarfélög og landshlutasamtök sveitarfélaga um mótun áætlunarinnar. Tryggt verði að forræði og ábyrgð
Samkvæmt nýútgefnum tölum frá Hagstofunni fjölgaði Sunnlendingum um 688 á síðasta ári eða um 2,69% og voru samtals 26.286 1. desember sl. Fjölgunin var umfram landsmeðaltal, en landsmönnum fjölgaði um 2,2% á árinu. Hlutfallslega var fjölgunin langmest í Grímsnes- og Grafningshreppi eða 17,6% en tölulega var fjölgunin mest í Árborg en þar fjölgaði íbúum um 363 og eru